|
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008 10:23 |
Hvað er að frétta ?Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir
2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 04 2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 05 1.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 06 2.sæti í -164cm Bikarmót Fitness 2006 2.sæti Unglingafl Íslandsmóti Fitness 07 3.sæti +163cm fl Fitness Íslandsmóti 08 |
Hvert ertu að fara keppa og hvenær ?
Ég er að fara að keppa í Noregi á Oslo Grand Prix núna um helgina. Vaxtarræktin verður haldin laugardaginn 12.apríl og svo keppum við í fitnessinu sunnudaginn 13.apríl
Hvað verðurðu lengi ? Fer út föstudagsmorgun og kem aftur heim á mánudaginn
Fer einhver með þér út ? Ég tek kærastann minn með mér sem aðstoðarmann. Annars eru það Rósa, Kristín, Sigurður J.K og Maggi Bess.
Nú ertu að fara út að keppa í fyrsta skipti hvernig er fílingurinn ? Mér finnst það rosa spennandi, gaman að fá að prufa þetta og verður alveg pottþétt frábær reynsla. Ég er samt líka pínu stressuð, þar sem ég hef aldrei farið á svona mót og þekki ekki inn á þetta, en sem betur fer eru fullt af reynsluboltum með mér í ferðinni svo þetta á nú ábyggilega allt eftir að fara vel.
Nú kepptirðu um páskana á Íslandsmóti IFBB hélstu bara áfram að kötta eftir það mót eða vissirðu ekki að þú værir að fara út ? Ég tók mér fjóra daga í páskaegg en hélt svo áfram. Var búin að gera ráð fyrir að ég færi eitthvað út, vissi bara ekki hvert eða hvenær, svo um leið og það var ákveðið að ég færi til Osló þá var allt sett á fullt aftur.
Hvernig heldurðu að þér muni ganga ? Ég er ekki að gera mér neinar stórar væntingar með þetta mót, er búin að vera að laumast til að kíkja á myndir af öðrum keppendum og þær eru allar rosalega flottar. Stefnan mín er bara að gera mitt allra besta svo ég geti verið sátt við mína framistöðu, og svo mæti ég bara aftur að ári liðnu enn betri og með enn hærri markmið.
Í hvaða flokki verður þú ? Ég er skráð í -163 cm flokkinn, mældist 163,1 cm á Íslandsmeistaramótinu og var því í plúsflokknum þar, en þar sem mælingin fer núna fram að kvöldi til þá lendi ég líklega undir.
|