Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 04. október 2010 11:49

Köttið gekk illa, þó ég gerði allt skv. "formúlunni"

Hvað er að frétta Katrín Eva ?

Ég er á leiðinni út til Finnlands eftir rúmar tvær vikur til að smyrja karlinn minn áður en hann stígur á sviðið til að endurheimta Norðurlandameistaratitilinn sinn :)  Vá hvað ég hlakka til !!


Katrín Eva og Maggi Bess á Arnold Classic 2010

Ljósm. Einkasafn

Elítan okkar í sportinu stefnir á sama mót, Ranný Kramer sem á eftir að mæta gríðarlega sterk á sviðið í Body Fitness, Siggi Kjartans sem hefur aldrei verið í betra formi mætir frá Noregi og Siddi mætir frá Akureyri og miðað við formið á honum síðast er hann í frábærum málum. Þannig að loksins mætir landið með lið á mót... orðið of langt síðan.

Það sem er svona helst að frétta af mér er að ég hef alfarið snúið mér að fjarþjálfun okkar Magga : BETRI ÁRANGUR.IS, en umfangið varð heldur stærra en við bjuggumst við. Ég tók mér því 6 mánuða frí frá vinnunni minni og er nú í sambandi við yndislegt fólk um allt land og um löndin í kring, sem hefur tekið þá ákvörðun að gera heilbrigt líferni að veruleika. Þannig að pínku óvart hef ég skapað mér mitt draumastarf, þe. að hafa jákvæð áhrif á fólk. Það er ein af mörgum ástæðum þess að ég brosi allan hringinn þessa dagana, því þakklætið sem við fáum frá þessu liði er endalaust og framfarirnar eru gríðarlegar. Það sem mér finnst líka snilld við þetta er að hafa Magga með mér í þessu, en reynsla hans á þessu sviði er óendanleg. Þannig að núna nýti ég hvert sekúndubrot af sólarhringnum, við að vinna úr umsóknum, hitta fólk, deila reynslu, mæla, kenna, fikta við að búa til nýja fídusa fyrir þjálfunina og svo sitja námskeið tengd því að styrkja hugann til að geta deilt enn meiri þekkingu..... æjá og æfa líka á hverjum degi til að hafa efni á því að segja fólki hvernig það á að æfa :)


Ertu að fara keppa á Icelandic Expó ?
Ef ég má svara hvað VAR að gerast , þá er svarið þetta: Ég var að fara að keppa á Icelandic Expó og hlakkaði hrikalega mikið til þess, enda stefnir allt í að Hjalti nái að setja Fitness & Vaxtarrækt á töluvert hærri stall hér á landi með þessu móti. "Nýtt lúkk" var í bígerð, ég ætlaði að prófa að vera blond á sviðinu og komin með flottasta outfitt sem ég hef séð. Ég byrjaði því mjög snemma að kötta og æfði af hörku, enda langaði mig að sanna mig enn betur hér heima eftir góðan árangur á Arnold Classic. En köttið gekk illa, þó ég gerði allt skv. "formúlunni" sem ég var vön. Var ekki alveg með kveikt á fattaranum.

Það sem ég er að reyna að segja er að ég keppi ekki afþví að fyrir stuttu síðan komumst við að því að við eigum von á barni á næsta ári og því mun sviðið bíða um ókominn tíma hjá mér.. Maggi stendur við sitt og rúmlega það ! ( ég sem ætlaði að vinna hann í Íþróttamaður ársins.. hann sá sér
leik á borði og barnaði mig.. hehehe). Það er semsagt STÆRSTA ástæða þess að ég og við Maggi BROSUM allan hringinn ! ..

Svo mega allir droppa við á síðunni minni sem ég föndraði, verð stöðugt duglegri við að henda inn fróðleik þar inn.
http://www.katrineva.is/