Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 06. október 2010 20:31

"Ég æfi enn eins og vitleysingur"

Hvað er að frétta Ranný Kramer ?

Ranný KramerRanný Kramer
Ljósm. Arnold Björnsson


Það er bara allt frábært að frétta af mér. :)

Ég æfi enn eins og vitleysingur 6 daga vikunnar með mínum góðu vinkonum og æfingafélögum Írisi Reynisdóttur og Dóru Ragnarsdóttur er síðan að reyna að ná brennslu alla vega 3x í viku þyrfti kannski að bæta við 1 til tveimur núna næstu tvær vikurnar.

Er hreinlega á fullu núna við að undirbúa mig fyrir tvö mót, annað er Norðurlandamótið sem haldið verður í Helsinki, í Finnlandi þann 23.október nk.

Það verður mjög spennandi að fara á það mót, enda í fyrsta skipti sem ég keppi erlendis og vonandi tekst mér að verða landi og þjóð til sóma þar á sviði og geri auðvitað mitt besta til að ná sem bestum árangri.

Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið

Er reyndar að svolítið knöpp á tíma þar sem ég vissi ekki af þessu móti fyrr en 10 vikur voru í það en ég þarf alveg mínar 12 í niðurskurð en sjáum til vonandi næst þetta.

Á það mót fara auk mín, Magnús Bess Júlíusson og Sigurður Kjartansson, einnig gætu fleiri bæst í hópinn og vonandi verður það þannig.

Ég tek svo kallinn minn með mér til halds og trausts enda er hann snillingur í því að bera á mig brúnkukremið ásamt því að vera aðal köttkokkurinn minn, gæti þetta aldrei án hans aðstoðar.

Hitt mótið sem ég stefndi upphaflega á að fara er Icelandic Health and Fitness expo 2010 sem haldið verður í Höllinni þann 20. nóvember.

Ég er í raun ekki síður spennt fyrir því móti þar sem þarna koma í heimsókn til okkar á skerið goðsagnir úr fitness heiminum þ.e. Monica Brant og Jay Culter þetta mót sem er Hjalti Árnason er með verður í samstarfi með þeim Norðanmönnum sem haldið hafa Bikarmótið á sama tíma, þetta verður því eitt risa mót, flottir kroppar ljósashow og læti áhorfendavænt og flott.

Þetta er mót sem enginn ætti að láta framhjá sér fara ! :)

Kveðja Ranný :)

Ranný Kramer
Ranný Kramer
Ljósm. Jónas Hallgrímsson