Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 20. febrúar 2008 00:00

Hvernig gengur köttið ?

Guðrún Hólm

Guðrún Hólm
Bikarmót IFBB 2007

Það gengur rosa vel hjá mér, allt samkvæmt áætlun hjá mér, og þá er bara að vona að það haldist þannig.

Hvenær byrjaði það ?
Ég byrjaði 3.jan, ákvað að hafa það bara gott yfir jólin og byrja svo bara af hörku.

Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ?
Ég er búin að skipta nokkrum sinnum um prógram, reyni að gera það reglulega til að forðast stöðnun. Þessa vikuna stækkaði ég alla mataskammtana mína frekar mikið og nuna er ég aðallega að borða kjúkling og fisk, brún grjón eða karteflur, grænt grænmeti, haframjöl, poppkex og svo sheika.

Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir
Ég var 21% þegar ég byrjaði, nú er ég komin í 15% og stefnan er 7-9%

Hvaða fæðubótarefni notarðu ?
Guðrún Hólmfríður
Íslandsmót IFBB 2007
Ég nota prótein, glutamin,creatin, ýmis vítamín og UDO's 3-6-9 olíu.


Hvar ertu að æfa ?
Ég æfi í World Class


Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ?
Ég æfi 2x á dag, sex daga vikunnar, tek frí á sunnudögum. Ég æfi yfirleitt með kærastanum mínum, Hrannari.


Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ?
Ég lyfti 5x í viku og ég er ennþá að lyfta þungt og tek þá færri reps en ég fer fljótlegar að breyta því og taka léttara með fleiri endurtekningum.


Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ?
Já að það hefur það, einsog til dæmis reyni ég að forðast að fara í veislur eða matarboð og slíkt og þar af leiðandi gerum við mun minna saman þegar ég er í niðurskurði, og það sama má segja með að fara út með vinum, það virðist soldið sitja eftir á hjá mér.
Við skulum bara að segja að það þarf mikið umburðalyndi til að búa með mér vikurnar fyrir mót


Ertu búin að finna sundbol og bikiní fyrir mótið ?
Er ekki alveg komin með hreint með bikini og sundbol, það er allt í vinnslu.