Senda í tölvupóst
Laugardagur, 16. febrúar 2008 00:00

Hvernig gengur köttið ?

Jóhanna Klausen

Jóhanna klausen
Ljósm. Helga Kvam


Það gengur bara frábærlega, mér líður vel og ég er meira en sátt við það sem komið er. Vonandi ganga seinustu vikurnar jafn vel.

Hvenær byrjaðiru að kötta ?
Ég byrjaði að skera í byrjun janúar, byrjaði nú samt rólega.

Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ?
Ég er búin að borða það sama frá upphafi, breyti hlutföllunum bara og hef minnkað hitaeiningarnar úr 2200 í 1800kcal. Ég borða alltaf það sama alla daga nema laugardaga, þá tek ég nammidag til að keyra upp kolvetnin og ætla ég að gera það alveg fram að móti. Ég borða aðallega haframjöl, kjúkling, brún hrísgrjón, banana og svo eru Sci-MX fæðubótarefnin að standa fyrir sínu. Auk þess staupa ég hörfræolíu og fiskiolíu.

Jóhanna Klausen
Ljósm. Helga Kvam

Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ?
Ég var 19,4% þegar ég byrjaði köttið, var svo 16% fyrir 2 vikum, fer í næstu mælingu á laugardaginn. Hef verið að losa 1% á viku og vonandi heldur þetta bara áfram niður á við. Ég stefni ekki á neina sérstaka fitu%, stefni á að geta staðið sátt við árangurinn á sviðinu um páskana!

Hvaða fæðubótarefni notarðu ?
Ég nota einungis Sci-MX vörurnar, sem hétu áður USN.

Hvar ertu að æfa ?
Ég æfi í World Class, Laugum, fyrir utan aðra hvora helgi sem ég eyði í Vaxtarræktinni á Akureyri enda uppalin þar.

Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ?
Ég brenni 5 morgna í viku og tek svo lyftingaæfingu seinni partinn 6x. Engin brennsla á miðvikudögum og frí á sunnudögum. Ég æfi með Helga mínum þegar ég get, annars hef ég æft mikið ein.

Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ?
Ég tek allt eins þungt og ég get, 4 sett og 8 reps. Reyni að miða þyngdirnar við að ég geti varla eða ekki tekið seinustu 2 repsin í seinasta settinu.

Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ?
Já, systur minni finnst ekki gaman að bjóða mér í mat lengur og get ég eiginlega ekki farið í mat til hennar þar sem allt er svo girnilegt og gott sem hún eldar! Það er alveg agalegt! En í fullri alvöru hafa allir í fjölskyldunni sýnt mér stuðning og skilning, og hafa meira að segja sýnt áhuga á þessu brjálæði. Helgi hefur náttúrulega sýnt mér mestan skilning en hann borðar alltaf það sama og ég á kvöldin, hjálpar mér við matar-og æfingaprógrömm, skóflar mér framúr klukkan 5:30 og minnir mig stöðugt á að svindl kemur ekki niður á neinum nema sjálfri mér.

Ertu búin að finna sundbol og bikiní fyrir mótið ?
Já, ég hef verið að versla bikiní frá USA, keypti rautt í fyrra og svart núna frá SuitsYouSwimwear.com. Á svo rauðan sundbol sem ég keypti af Kristjönu í fyrra, en hann er frá sömu framleiðendum. Mæli hiklaust með þeim hjá SuitsYou. Er svo kannski að fá einn geggjaðan sundbol lánaðan sem var saumaður hérna heima á klakanum, en það er enn í skoðun.