"bíddu stendur tíminn í stað eða hehe"Viðtal við Ranný Kramer fyrir EXPO 
Ranný Kramer keppti nýverið á Norðurlandamóti IFBB sem haldið var í Finnlandi en hún er einnig að fara keppa á Fitnessmótinu sem haldið verður á föstudaginn og laugardaginn. Við tókum hana í smá spjall :)
Hvernig var tilfinningin að fara á svona stórmót erlendis og hver var svona helsti munurinn á mótinu þar og hérna heima ? Að keppa á svona stórmóti erlendis er einstök lífsreynsla. Helsti munurinn er að það er fjöldinn allur af keppendum, ég var t.d í 17 stelpna hóp sem var hverri annarri flottari. Það er allt mun strangara hvað varðar fatnað og skó, ég var t.d ekkert viss um að geta keppt þar sem það var sett út á svarta bikiníið sem ég var með þegar hæðarmælingin fór fram. Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið
Það átti að vera of efnislítið að aftan, ég þurfti að klæða mig í það yfir litaða bikiníið til að sýna hvernig það var. Dómarinn sagði að það yrði tékkað á mér áður en ég færi á svið hvort það væri í lagi. Það kom svo enginn að kíkja thank god, enda límdi ég það pikkpast eins breytt út og ég gat.
Það var einnig bannað að vera í svona platform skóm sem við erum að ég held bara allar í hér á Íslandi, það voru reyndar tveir búnir að samþykkja þá en þá kom ein af dómurunum hlaupandi veifandi hendi og sagði að ég yrði dæmd niður ef ég mætti í þessu á sviðið. Þannig að ég þurfti að nota sömu skóna í öllum settunum. Ég skalf á beinunum í orðsins fyllstu merkingu þegar þessu lauk öllu saman.
Uppröðun er svipuð en það er einn maður þarna sem er alveg hel strangur á röðinni raðar upp eftir númerum og það fær engin að fara úr röðinni nema að spyrja hann.  Ljósm. Timo Laaksonen
Á sviðinu er svo kynnir og þetta finnst mér snilld, hann kynnir okkur en jafnframt stýrir hann okkur nákvæmlega á sviðinu, þ.e.a.s gengur á þann stað sem við eigum að stoppa, ef við þurfum að færa okkur segir hann okkur nákvæmlega hvert. Síðan ef keppendur þurfa að skipta um stað sem er oft, þá gengur hann að okkur og lætur vita nákvæmlega hver skiptir við hvern. Mjög fagmannlegt og flott.  Ljósm. Fitness.ee
Hvernig voru keppendurnir, var brjálað keppnisskap í gangi eða voru allir bara að spjalla baksviðs ?
Keppendur sumir hverjir þekktust og voru þeir að spjalla saman bæði voru nokkrir frá sömu löndum síðan þeir sem höfðu verið kannski að keppa saman áður. Ég var nú lítið á spjallinu, heilsaði reyndar einni þarna sem ég addaði inn á fésinu nokkru áður sem lenti svo í 2.sæti, virkilega flott stelpa frá Danmörku, Lene .Það voru alveg augngotur en ekki frá öllum þar sem við vorum í nokkrum herbergjum.
Annars fannst mér helsti munurinn hveru margar voru aaaaaansi djúpraddaðar þarna, en þá helst þær sem voru í bodybuilding classic, og bodybuilding. úfff og sumar bara eins og karlmenn hreinlega eeeeeeekki fallegt.
Hvernig hefur gengur að halda áfram að skera niður eftir svona stórmót ?
Úfff að halda áfram að skera..... ja við skulum segja að maður hugsi stundum...."bíddu stendur tíminn í stað eða hehe". Það er svolítið skrítið að halda áfram að skera niður þegar maður er búinn að keppa, en þetta er samt vel þess virði þar sem Expo mótið verður örugglega mjög skemmtilegt mót. :))
Mataræðið hjá mér er ósköp svipað og fyrir mótin á undan, hafragrautur oft á morgnana með rúsinum + súkkulaði/myntu whey protein frá Sci-MX útí eða eggjahvítur og haframjöl, + rúsínur steikt á pönnu. Kjúlli í hádeginu og sæt kartafla + stundum spínat. Einstaka sinnum kjúllasalad, paprika, laukur, spinat, kál og jarðaber ÞAÐ ER GOTT.. whey protein í kaffitímunum frá Sci-MX kvöldmaturinn er þá yfirleitt, lax, ýsa eða naut og þá sæt kartafla nú eða ef ég er að minnka aðeins við mig kolvetnin þá tek ég sætu kartöfluna út og set bara spínat inn. Fyrir svefninn fæ ég mér svo GRS protein frá Sci-MX jarðaberja namm :)))) 
Er einhver að þjálfa eða aðstoða þig með matarræðið fyrir þetta mót ? Eins og áður þá hefur hún Guðrún H. Ólafs peppað mig upp og við ráðið ráðum okkar saman þegar ég er orðin pirruð á matnum stend í stað eða annað slíkt og er hún þá súper stuðningur við mig, en annars finnst mér ágætt stundum bara að rótera matnum eftir eigin höfði.
Ég þjálfa mig sjálf lyfti 6x í viku (fætur 2x) og þungt allan tímann hvort sem ég er að skera niður eða ekki, það er helst viku fyrir vatnslosun sem ég tek kannski aðeins fleiri endurtekningar. Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ?
Aðal breytingin sem þetta hefur á fjölskylduna er að ég er meira fjarverandi þegar ég fer að setja inn brennsluæfingar, en þær hef ég yfirleitt tekið eftir vinnu seinni partinn. Einnig lendir það á eiginmanninum að kokka ofan í kerlinguna en hann er SNILLINGUR í því. :)))
Hvað ertu í fituprósentu ? Hef ekki hugmynd hvað ég er í fituprósentu akkúrat núna en var um 9,7% daginn áður en ég fór út til Finnlands og þar liggur helsti munurinn á því hvernig ég var á Íslandsmótinu fyrir norðan í apríl en þá var ég 8,05% enda búin að skera niður þá í 12 vikur en ekki 10.
Sjáumst á Expoinu :) Kveðja, Ranný Kramer 
|