 Ljósm. Jónas Hallgrímsson
|
Ég heiti Sólveig og er fædd og uppalin í Reykjavík. Ég bý í Hlíðunum með manninum mínum ásamt börnunum okkar tveim Benjamín 5 ára og Regínu Lind 2 ára. Helstu áhugamál eru líkamsrækt, útivist, ferðalög, fjölskyldan og finnst líka æðislegt að elda og borða góðan mat í góðra vina hópi. Er að vinna á Fasteignasölunni Húsavík sem ritari og við skjalagerð.
Fæðingarár: 1979
Hæð: 170
Þyngd núna: tæp 62 kg.
Þyngd á síðasta móti: vigtaði mig ekki á keppnisdag en var ca. 59 kg. viku fyrir mót
Offseason þyngd: 66 kg
Mót sem þú hefur keppt á og sæti ? Íslandsmeistaramótið í módelfitness 2010 +167, 4.-11. sæti
Hvenær og hvernig datt þér í hug að byrja keppa í fitness ? Hafði tekið mínar skorpur í ræktinni eins og svo margir gera og tók mér svo alltaf pásur. Þegar ég átti eldri strákinn þá tók ég eina slíka og svo leið tíminn og barn nr. 2 kom. Þegar stelpan varð 4 mánaða ákvað ég að rífa mig uppá rassgatinu og drífa mig af stað. Áður fyrr hafði ég alltaf byrjað á að kaupa mér ný æfingaföt þegar ég byrjaði en ég ákvað að snúa því við í þetta skiptið, frekar að verðlauna mig eftir ákveðin tíma. Svo þegar sá tími kom vantaði mig eitthvað annað markmið. Var búin að vera fletta blöðum og skoða myndir á netinu og hafði líka alltaf vitað af þessum keppnum en datt aldrei í hug að ég mundi keppa sjálf. En svo ákvað ég bara að slá til og sé sko ekki eftir því núna Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið
Hvar ertu að æfa og með hverjum? Er að æfa uppí Sporthúsi með massalínunum og ofurskvísunum Eddu Ósk og Rósu
Hvaða lyftingaraðferð notarðu og hvernig er æfingarvikan? Lyfti þungt allt árið, bæti svo brennslunni við í köttinu. Byrjaði á 3 brennsluæfingum á viku ásamt því að brenna í korter eftir hverja lyftingaræfingu. Núna síðustu 4 vikurnar ákvað ég að gefa aðeins í og er að taka 6 brennsluæfingar. Lyfti s.s. 6 sinnum og brenni 6 sinnum á fastandi maga.
 Ljósm. Jónas Hallgrímsson |
Hvernig hefur köttið gengið ? Rosalega vel, stóð meir að segja í því að baka fyrir og halda tvö barnaafmæli og stóðst það eins og hetja;)
Hvenær byrjaðirðu að kötta fyrir þetta mót ? Byrjaði um miðjan ágúst
Hvernig er matarprógrammið? Það er bara voða basic. Hafragrautur og ON prótein frá perform.is í morgunmat ásamt vítamínum og steinefnum. Svo bara þetta týpiska kjúlli, fiskur, grjón, grænmeti og próteinsjeikar. Er svo að taka glutamine, BCAA, flaxseed oil og trefjar allt frá Optimum Nutrition. Er búin að vera mjög dugleg að reyna hafa matinn fjölbreyttan þó að hráefnið sé það ekki. Hef leikið mér með allavega krydd og reynt að skipta grænmetinu soldið út, vera ekki alltaf með það sama svo að ég fái ekki leið. Hef líka mikið verið að fá mér fisk í allskonar marineringum frá Fiskikónginum sem er bara algjört æði.
Hefur köttið einhver áhrif á fjölskyldu lífið ? Get ekki neitað því. Strákurinn orðinn frekar pirraður á að vera svona mikið í barnagæslunni niðrí Sporthúsi, held samt að stelpan finni minna fyrir því. Veit líka að maðurinn minn verður mjög feginn að fá aðeins meiri athygli þegar þetta er búið;)
Hver er helsti munurinn á þér frá síðasta móti ? Er köttaðri núna, er orðin mjög spennt að sjá hver endanleg útkoma verður á keppnisdag
|