Fjóla Björk ætlar sér stóra hluti Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 08. febrúar 2011 16:34

Úrklippa

Bleikt.is

23.1.2011 - Ester Ósk Árnadóttir


Fjóla Björk er 21 árs gömul stelpa frá Akureyri sem hefur sett stefnuna hátt í lífinu. Hún býr í Danmörku núna, hannar sína eigin línu af íþróttatoppum og er á fullu í líkamsrækt.


Hún segist vera í skemmtilegustu vinnu í heimi, þar sem hún bæði þjálfar og aðstoðar fólk í ræktinni ásamt því að undirbúa sjálfa sig af kappi fyrir keppni á alþjóðlegu stórmóti í Kanada, þar sem hún ætlar sér að ná langt.


Við heyrðum í þessari metnaðarfullu stúlku og lögðum fyrir hana nokkrar spurningar.


Geturu sagt okkur aðeins frá þér?


Ég heiti Fjóla Björk, 21 árs og er frá Akureyri. Það sem ég get sagt um mig í dag tengist allt líkamsrækt. Að koma fólki í form, hönnun á fitnessfatnað, keppnisferðir, myndatökur og hámarks metnaði! Gæti ekki hugsað mér það betra enda er ég búin að vinna hörðum höndum því að komast hingað þar sem ég er í dag.

Hvernig fékkstu áhuga á fitness?


Þegar ég var yngri æfði ég alltaf einhverjar íþróttir. Fimleika, taekwondo, boot-camp og við mamma voru duglegar við að fara í sund og synda mikið. Svo fór ég í gömlu Vaxtarræktina árið 2008 og langaði að prófa lyfta lóðum og bað Sigurð Gestsson að búa til æfingarprógram handa mér, sem hann gerði og lagði til að ég færi að keppa í módel fitness. 

Helgi Tulinius og Nanna konan hans héldu námskeið fyrir stelpur sem höfðu áhuga á að fara keppa og eftir það hef ég ekki stoppað. 

Það er semsagt þessu fólki og fleiri þjálfurum í gömlu vaxtarræktinni að þakka fyrir að ég er í fitness núna.

Hvað ertu að gera í Danmörku?

Ég vinn í líkamsrækt sem einkaþjálfari, spinning-, push-, aerobic/step- þjálfari og fitness næringarfræðingur. Svo er ég með tíma fyrir unglinga, þar sem ég fæ bekki úr grunnskólum til mín í þjálfun og hef stundum verið með tíma fyrir unglinga sem hafa átt erfitt.


Þetta er skemmtilegasta vinna í heimi, ég fæ að hreyfa mig endalaust mikið, kynnist alls konar fólki. Þetta er mjög skapandi starf, að fá að hvetja fólk til að hreyfa sig og lifa heilbrigðu lífi.

Þú ert einnig með fjarþjálfun, hvernig gengur það?


Ég fæ svo gríðarlega mikið af emailum frá stelpum sem langar að komast í gott form, fá æfingarprógram, matarráðgjöf og jafnvel keppa í módelfitness. Ég er líka nýlega farinn að fá email frá strákum sem langar að byggja upp vöðva og laga matarræðið sitt. Ég er einnig með matarráðgjöf fyrir fólk með lactose- eða glúteinóþol eða aðrar sérþarfir.


Ég er með heimasíðu, www.fiolabiork.com, þar sem er hægt að finna ýmsar upplýsingar um heilsu, þjálfun og matarræði. Til að fá meiri upplýsingar um fjarþjálfun má senda mér email á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Geturu sagt okkur frá daglegri rúntínu þinni?


6:30 Vakna og borða hafragrautinn og lýsið!
7:30 Skokka uppí rækt þar sem ég er að kenna spinning (nei danirnir eru ekki að mæta í ræktina kl 6:10 eins og íslendingar.) 
9:00 Tek 20-30 mínútna æfingu, æfi bara 1 vöðvahóp + próteinshake strax á eftir.
10:00 Versla á leiðinni heim úr ræktinni.
11:00 Fæ mér makríl í tómatsósu og soðið egg á danskt rúgbrauð í millimál. Fer í tölvuna og svara póstum, fer yfir matardagbækur, bý til æfingarprógröm og fleira sem tengist fjarþjálfuninni eða tek við pöntunum á íþróttafötum.
12:30 Elda kjúlla, brún hrísgrjón og grænmeti eða annað delisíjus í hádegismat og jafnvel fer með einn skammt upp í rækt til Youssefs sem er örugglega þarna einhversstaðar að búta í sundur hlaupabretti og skipta um mótor. Stundum er ég með þjálfun fyrir börn í hádeginu. 
Æfi aftur 20-30 mín einn vöðvahóp.
16:00-20:00 Er með einkaþjálfun og kenna einhverja tíma eftir því hvaða dagur er. 
20:00 Soðinn fiskur, ofnbakaður lax eða kjúlli með kotasælu og grænmeti. Meiri tölvuvinna og kannski slappa aðeins af, kíkja á kaffihús (þá fæ ég mér oftast chai latte namm,namm).
22:00 Casein próteinshake. Sofa takk og góða nótt! 



Hvernig hefur þér gengið að keppa í fitness?



Ég var búin að vera lyfta í hálft ár þegar ég keppti á Bikarmótinu í nóvember 2008 og komst í úrslit en lenti í 6 sæti. Á Íslandsmótinu 2009 komst ég í 3 sætið, Bikarmótinu 2009 var það 2 sætið og Bikarmótinu 2010 var ekkert eftir nema að sjálfsögðu 1 sætið og bikarmeistaratitill!  


Þú ert að taka þátt í keppni til að komast á forsíðu tímarits, hvers konar keppni er það og hvað geturu unnið á því að taka þátt?


Fyrir ári síðan skráði ég mig í þessa keppni á heimasíðu Status Fitness ásamt þúsundum annarra stelpna. 160 stelpur komust í undanúrslit og áframhaldandi keppni milli þeirra stendur núna á facebook síðu Status Fitness.


Endanleg úrslit veljast með opinni atkvæðagreiðslu og dómum ljósmyndara Status Fitness. Ég er atkvæðahæst í dag og vona svo sannarlega að ég nái að halda forustunni til 31. janúar þegar úrslitin verða ákveðin.

Í verðlaun er að prýða forsíðu Status Fitness Magazine! Þá eru allir vegir færir. Maður nú þegar orðinn eftirsóttur í viðtöl og myndatökur.

Svo er ég einnig að fara keppa í Canada sem fitness módel hjá WBFF (World Bodybuilding and Fitness Federation) í lok apríl á þessu ári. Paul Dillett stofnandi og formaður félagsins er búinn að hafa samband við mig eftir að hafa skoðað myndir af mér og vil endilega sjá mig keppa fyrir hans félag.


Þetta er mitt fyrsta erlenda stórmót og ég ætla mér stóra hluti á þessu móti! 
Það getur hjálpað mikið að hafa unnið Status Fitness keppnina því þá veit fólk hver ég er þegar ég fer til Canada. 

Ég næ til meira fólks og get verið hvatning og fyrirmynd fyrir alla sem vilja ná árangri með heilbrigðu matarræði og þjálfun. 


Ég hef heyrt að þú sért að hanna þína eigin línu, hvað ertu að hanna og hvernig datt þér það í hug að fara út í það?


Draumurinn var alltaf að verða fatahönnuður. Ég kláraði stúdentinn í textíl og hönnun í VMA og dúxaði þar. Ég var alltaf að hanna og sauma föt á sjálfa mig, fjölskylduna, vinkonurnar og var einnig með heimasíðu þar sem allir gátu pantað föt. 

Ég sauma alltaf keppnisflíkurnar mínar þegar ég er að keppa í fitness. Svo varð þessi toppur sem ég saumaði fyrir síðustu keppni svo vinsæll að ég fékk bara tugi fyrirspurna á facebook hvort það væri hægt að kaupa svona toppa. Svo ég saumaði bara lager af þeim og fór með til Íslands í nóvember og þeir urðu uppseldir um leið. Núna er ég kominn með fullt af flottum litum og þar á meðal sebramunstri og gyllt. 

Það er hægt að skoða og panta á facebook með því að leita af "Fiola Biork - Body Action".


Hvert stefnir þú í framtíðinni?


Í faðm hamingju og heilbrigði, sigra WBFF fitness módel procard. Með farsælan fitnessferil sem módel og þjálfari, vera hluti af öllum helstu fitness viðburðum í heiminum, halda fyrirlestra, reka mitt eigið fyrirtæki (líkamsræktarstöð og hönnun á fitnessfatnaðar.)


Vera yfir mig ástafangin af manni með sömu lífsstefnu, eiga frábært fjölskyldulíf með mikið af metnaðargjörnum góðum vinum í kringum mig. Ég stefni að það að búa heima á Íslandi í framtíðinni en vona að ég muni ferðist mikið til útlanda vegna vinnunnar. 


Hvert er lífsmottóið þitt?


Lífsmottóið er "skapaðu þitt eigið líf, það er allt hægt" því að það er enginn annar sem ákveður hvað gerist í þínu lífi, það er allt í þínum höndum. Þetta stúderaði ég í avatarfræðunum sem er hægt að lesa meira um á www.avatarepc.com.