Fitnessdrottning í flugfreyjuna Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 10. mars 2011 15:25

Úrklippa

Vísir, 10. mar. 2011 13:45

Fitnessdrottning í flugfreyjuna



„Ég sá auglýst flugfreyjustarf og fannst það spennandi starf," svarar Freyja Sigurðardóttir, margfaldur Fitnessmeistari og einkaþjálfari í Hreyfingu, en hún var ein af tæplega eitt þúsund manns sem sóttu um störf flugliða hjá Iceland Express fyrir næsta sumar.

„Ég þekki nokkrar flugfreyjur og þær tala allar um hvað þetta er æðislegt starf. Ég var súper ánægð að fá inn og eiginlega get ekki beðið eftir að byrja að vinna. Það verður fín tilbreyting að taka smá pásu frá líkamsræktarsalnum," segir Freyja.