Viðtal við Sif Sveinsdóttur Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 15. desember 2009 00:00

15.desember 2009


Kostir/ Gallar: Þetta er virkilega skemmtilegt sport og maður kynnist fullt af frábæru fólki í gegnum þetta sem er með svipuð áhugamál, svo líður mér sjaldan betur en þegar ég er dugleg í holla matarræðinu sem fylgir því að vera í köttinu.  Það er fátt skemmtilegra en þegar maður sér erfiðið skila árangri. Þetta er fyrst og fremst hobbýið mitt og í þetta fer mestur frítími minn, ég hef svo gaman af því að æfa, ég tala nú ekki um í góðum félagsskap. Gallarnir eru helst hvað þetta er dýrt sport og þar munar gríðarlega um að vera með góða styrktaraðila, það fleytir manni langt. Stundum er ég líka þreytt og þarf iðulega að svara alls konar spurningum um matarræðið og þessa lifnaðarhætti sem einkenna þessar 10-12 vikur fyrir mót. Svo eru það fjölskyldan og vinirnir sem þetta bitnar vissulega líka á. Ég er bara svo lánsöm að eiga virkilega góða að...fólk sem stendur með mér í einu og öllu.

Um mig: Ég er fædd og alin upp á Patreksfirði og bjó þar alveg þar til ég kláraði 10.bekkinn og flutti til Reykjavíkur til að fara í menntaskóla.  Kláraði stúdentinn í MH og eftir það fór ég í hárgreiðsluna og vann svo í nokkur ár í þeim bransa hjá Toni and Guy og líka í Þjóðleikhúsinu. Nú starfa ég hjá Arion banka, það er frábær vinnustaður þrátt fyrir ,,kreppuna´´ og þetta er góður vinnutími sem fellur vel að æfingunum.
Heimasíður: Facebook, vodvafikn.net til að fylgjast með sportinu hérna heima :) , fitness.is og mér finnst gaman að grafa upp erlendar síður með myndum frá mótum erlendis og síður sem hafa að geyma keppnisfatnað, íþróttafatnað  og slíkt.
Markmiðið er alltaf að bæta sig og ná lengra. Gera þetta á meðan ég nýt þess og ekki gleyma að njóta tímans á meðan á þessu stendur. Draumurinn er auðvitað að fara erlendis til að keppa í framtíðinni.
Hvað drífur þig áfram? Það er einhver kraftur innra með mér sem drífur mig áfram sama hvað gengur á, held að það sé bara afþví að ég hef svo hrikalega gaman af þessu. Ef hann væri ekki til staðar þá væri ég ekki að þessu. Maður verður að njóta. Það er líka lönguninn til að sigra er það ekki??? Mikið keppnisskap hér!!
Hvaða líkamspart ertu ánægðust með? Bakið...og finnst lang skemmtilegast að taka bakæfingarnar.
Fyrirmynd og hvað hjálpar mér mest gegnum æfingarnar? Ég get ekki sagt að ég eigi einhverja fyrirmynd en þó samt....ætla að eiga það út af fyrir mig. En það sem hjálpar mér mest gegnum æfingarnar er skemmtilegur félagsskapur og keppnisskapið. Finnst gott að hafa BESTA þjálfarann líka, hann Konna...án hans væri ég löngu búin að gefast upp held ég. Hann hefur fylgt mér gegnum öll mótin og ég er búin að læra svo ótrúlega mikið af honum og á honum gríðarlega margt að þakka. Enda er líka orðið brjálað að gera hjá honum, sýnir bara hversu góður hann er. Verð held ég bara heppin að komast að í tíma hjá Konna á næstunni :) Það er alltaf gott að vita að það er einhver sem bíður eftir að þú mætir og þess vegna skrópar maður ekki á æfingum ;)
Venjulegur dagur í lífi mínu: Vakna ca 5.50 og pakka niður máltíðunum fyrir daginn sem ég þarf að taka með mér í vinnuna. Mæti svo í brennslu. Svo er það sturtan og beint í vinnuna og svo úr vinnunni og beint aftur á lyftingar-æfingu. Heim borða kvöldmat, sturta og elda fyrir morgundaginn. Er svo helst komin í rúmið um 22....kannski maður leyfi sér smá TV áður en maður fer að lúlla.
Hvernig finnst þér best að æfa og með hverjum? Finnst best að lyfta 5 sinnum í viku og þá með þjálfara. Æfingin verður hnitmiðaðri þannig og maður er fljótari gegnum æfinguna. Mér finnst best að æfa með fólki sem er duglegt og ætlar sér að ná sínum markmiðum alveg eins og ég. Eignaðist ROSALEGAN æfingafélaga nú í síðasta kötti og það er hún Heiðrún sem vann unglingaflokkinn...kann að meta þennan anda og metnað sem hún hefur fyrir æfingunum og svo verð ég að segja að Einhildur kom mér gríðarlega á óvart líka en hún æfði með okkur tveim á lokasprettinum....þessar tvær hafa sko drifkraft og maður hrífst bara með. Ekki hægt annað. Við Heiðrún erum svo bara búnar að halda áfram að æfa saman eftir mótið og það finnst mér líka svo gott því það heldur manni í góðri rútínu.
Fæðubótarefni: Protein og glutamín og svo tek ég bara fjölvítamín, járn og hörfræolíu.

  1. Nafn: Sif Sveinsdóttir
  2. Aldur: ´82
  3. Hæð: 1.65cm.
  4. Off-season þyngd og keppnisþyngd ? Hefur verið mjög misjafnt. Ca 54-56kg á mótum en svona 60kg þess á milli.
  5. Styrktaraðilar: Serrano, Euroshopper, Maximize, Ultratone, Laugar Spa, World Class, Hreysti o.fl.
  6. Ferilskrá: 3.Sæti, módelfitness á íslandsmeistarmóti IFBB 2008,  3.Sæti módelfitness á bikarmóti IFBB 2008 og 1.sæti módelfitness bikarmót IFBB 2009.
  7. Staður: Reykjavík
  8. Æfingastöð: World Class, Laugar.
  9. Æfingafélagi ? Heiðrún Ingrid Hlíðberg
  10. Atvinna ? Arion banki, aðalútibú.
  11. Áhugamál ? Það er fyrst og fremst líkamsræktin og fólkið sem mér þykir vænt um enda gefst lítill tími í annað.
  12. Hvernig kviknaði áhuginn? Byrjaði nú bara með korti í World Class. Fór svo síðar í einkaþjálfun og lærði heilan helling af því, horfði á nokkur mót og hér er ég í dag....
  13. Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Þegar ég var farin að hætt að geta sleppt úr degi af æfingum þá ákvað ég bara að gera alvöru úr þessu...saknaði þess alltaf að æfa þegar ég tók mér frí. Svo ég ákvað bara að fara alla leið, sjá hvað ég gæti.
  14. Hvernig datt þér í hug að fara keppa ? Ég og Begga vinkona vorum búnar að eiga þennan sameiginlega draum og fyrst við höfðum stuðning af hvorri annarri þá ákváðum við bara að kýla á þetta. Fórum í Þjálfun hjá Konráð V. Gíslasyni og hann kom okkur báðum áfram í toppsætin. Hef verið hjá honum í þjálfun meira og minna síðan og er alltaf að bæta mig í hvert skipti.
  15. Varstu strax heillaður af fitnessinu/vaxtarræktinni/kraftlyftingunum/aflraununum? já alveg frá byrjun. Man meira að segja eftir því að ég horfði alltaf á vaxtarræktar- og kraftakeppnir í sjónvarpinu þegar ég var lítil og Jón Páll var upp á sitt besta.
  16. Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja? Það voru íslensku stelpurnar sem maður sá á mótum hérna heima eins og Eva og Heiðrún.
  17. En í dag ? Hef enga fyrirmynd svosem....reyni bara að bæta sjálfa mig það er það eina sem skiptir máli.
  18. Hver eru framtíðarplönin ? Ætlarðu að keppa aftur ?  Já keppi pottþétt aftur. Bikarmót IFBB 2009 er nýbúið og gekk frábærlega. Næst á dagskrá er svo að lyfta meira og meira og vonandi bæta sig enn frekar, sjáum svo hvað setur !!
  19. Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingar/aflraunir á Íslandi ? Mætti vera meiri umræða um þetta sport í fjölmiðlum og íþróttafréttunum. Mætti sýna mótin í sjónvarpinu og kannski bara upplýsa fólk betur um hvað þetta snýst. Mér finnst vera mikil fjölgun á keppendum milli ára og greinilegt að sportið er að stækka. Svo mætti gjarnan hafa verðlaunin aðeins meira grand...fólk verður alltaf alveg steinhissa þegar ég segi því að það sé nú bara bikarinn og svo kannski prótein fyrir fyrsta sætið. Þetta hrikalega dýrt sport og erfitt að fá styrktaraðila stundum því að sportið fær ekki næga athygli þrátt fyrir að við eigum þarna fullt af frábæru íþróttafólki sem er að gera góða hluti. Svo finnst mér að keppendur mættu líka alveg passa sig að tala vel um sportið út á við, það hefur mikið að segja.
  20. Uppáhaldsæfing og líkamspartur ? Finnst skemmtilegast að taka bakið og maga. Bakið er klárlega minn uppáhalds líkamspartur.
  21. Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni? Hef yfirleitt tekið 12 vikur í skurðinn fyrir mót en í þetta skiptið tók ég ekki nema ca. 9-10vikur.
  22. Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í  vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingum/aflraunum? Að fjármagna þetta allt. Við erum að tala um hátt í 100þús bara fyrir keppnisfatnað á stelpurnar svo ég tali nú ekki um allt annað...fæðubótarefni, kjúllann, neglur og hár og bla...bla....endalaust dót sem er rándýrt.
  23. Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Fæðubótaefni í uppáhaldi: Nota protein og glutamin.  Svo er ég með vítamín frá Maximize.
  24. Æfingarvikan: (on eða off season) Lyfti 5sinnum í viku og brenni 6 sinnum í viku. Alltaf frí á miðvikudögum. Off season finnst mér best að klára bæði um morguninn þ.e. lyfta og brenna smá.
  25. Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Er þetta ekki voðalega óhollur lífsstíll???  Ertu ekki alltaf svöng??? Máttu þetta??? Bara endalaust mikið spurt um matinn minn og þegar ég er ekki í köttinu þá er spurt hvort ég ætli virkilega að borða þetta ALLT???? Svolítið erfitt stundum að sitja fyrir svörum með allt sem þú lætur oní mallakútinn.
  26. Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Fólki sem hefur markmið og vinnur að því. Nenni ekki að eyða tíma í hangs.
  27. Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness/aflraunir/kraftlyftingar? Að þetta sé óhollur lífstíll.
  28. Hver eru algengustu byrjendamistökin ? Mér finnst líka allt of margar stelpur sjá þessar keppnir í hyllingum og vita svo bara ekkert um hvað málið snýst og hversu mikil vinna þetta er...snýst ekki bara um að vera sæt og mjó...þetta er HÖRKUPÚL!! Betra að kanna málið aðeins áður en lagt er í þetta. Svo er ekki góð hugmynd að fá ráð frá of mörgum. Maður verður að hafa trú á sjálfum sér fyrst og fremst og ekki láta aðra tala þig inn á eitthvað sem hentar þér ekki.
  29. Hvað þarf til til þess að ná árangri ? Þú þarft virkilega að vilja ná árangri....vinnusemi, skipulag og virkilega gott matarræði. Þetta er gífurleg vinna og þú verður að hafa aga og sjálfsstjórn fyrir allan peninginn.
  30. Ráð til nýliða  ?  Fá sér góðan þjálfara með reynslu sem kann að setja upp gott prógram sem hentar þér.

Svo eru það HAPPASUNDBOLASPURNINGARNAR

- Hvenær þú kepptir fyrst í sundbolnum (eða hver það var sem keppti í honum fyrst): Ég keppti fyrst í bolnum á Íslandsmeistaramótinu um páskana 2008 og lenti þá í 3.sæti en það var í fyrsta skipti sem ég keppti í fitness.

- Hvað er oft búið að keppa í honum (hverjar, hvenær og í hvaða sæti þær lentu): Hann hefur verið notaður á 4mótum í röð núna...2008 til 2009 og þar af keppti ég tvisvar í röð í honum 2008.

3.sæti módelfitness á Íslandsmeistarmóti IFBB 2008 ( fyrsta mótið mitt)
3.sæti módelfitness á bikarmóti IFBB 2008 (annað mótið mitt)

Svo lánaði ég Írisi vinkonu minni bolinn fyrir sitt fyrsta mót því ég var í pásu í það skiptið og hún  vann.

1.sæti Íslandsmeistarmót IFBB 2009 ( Íris Arna Geirsdóttir og hennar fyrsta mót )

og nú síðast lánaði ég æfingafélaga mínum og vinkonu Heiðrúnu Ingrid Hlíðberg bolinn fyrir sitt fyrsta mót

1.sæti Bikarmót IFBB 2009 Unglingaflokki

Hafði bolinn því nærri mér þegar ég vann líka núna á síðasta móti 1.sæti í módelfitness.