Ragna Gréta - Íslandsmeistari Ungl.fl. Módel Fitness 2011 Senda í tölvupóst

Alveg MUST að halda utan um efni sem tengist fitnessinu en hérna er viðtal sem Agnes Kristín tók við Rögnu Grétu sem sigraði Módel Fitness unglingaflokkinn á Íslandsmóti IFBB 2011

Úrklippa af agneskristin.blogspot.com

Höfundur: Agnes Kristín

July 10, 2011

Ragna Gréta

Ragna Gréta Eiðsdóttir Íslandsmeistari í unglingaflokk módel fitness svaraði nokkrum spurningum mínum, nú er ég búin að spjalla við öll verðlaunasætin í flokknum og það er búið að vera ansi fróðlegt að skyggnast aðeins betur inn í þennan heim, vil þakka þeim öllum Aldísi, Magneu og Rögnu kærlega fyrir!

Mér hefur alltaf þótt svo lítið til um módel fitness á netinu og ég vona að þessi þrjú viðtöl mín hafi aðeins bætt úr skák fyrir þær skvísur sem hafa verið forvitnar um módel fitnessið og langar mögulega að keppa!



Hvenær og hversvegna ákvaðst þú að þú ætlaðir að keppa í módel fitness? Mamma mín var að keppa fyrir nokkrum árum og síðan þá hef ég haft mjög mikinn áhuga á að keppa sjálf, svo fyrir rúmu hálfu ári ákvað ég að keppa.


Fannst þér þú ekkert missa af félagslífinu á meðan þessu stóð?Nei ég get í rauninni ekki sagt það þótt það hafi farið mikill tími í æfingar. Ég tók brennslu á morgnanna og lyfti annað hvort í eyðum eða strax eftir skóla svo ég hafði alltaf tíma á kvöldin fyrir vinina.


Varstu búin að vera æfa/lyfta eitthvað af viti áður en þú ákvaðst að keppa,
ef svo er, hvernig breyttust æfingarnar við ákvörðunina?
Ég hef verið í fótboltanum í mörg ár en þegar ég byrjaði í niðurskurði meiddist ég og hætti í fótboltanum í bili, þá náttúrulega breyttust æfingarnar frá fótbolta æfingum í brennslu í ræktinni. Þegar uppi var staðið var ég búinn að lyfta í tæpt ár þegar ég keppti.


Hafðir þú einkaþjálfara í ferlinu eða aflaðiru þér bara sjálf upplýsinga? Ég hefði náttúrulega aldrei getað þetta án mömmu minnar svo ég get eiginlega annað sagt en að hún hafi verið minn einkaþjálfari, hún stóð við bakið á mér allan tímann.



Var þetta ekki dýrt dæmi, förðunin, keppnisfatnaðurinn, tanið, förðunin, skartið og fleira? Þetta sport er náttúrulega mjög dýrt en ég slapp mjög vel, mamma átti helling síðan hún var að keppa sjálf og svo fékk ég eitthvað af skartinu lánað hjá vinkonum mínum. Sundbolinn og bíkiníið fékk ég lánað, svo greiddi og farðaði Ebba Særún systir vinkonu minnar mig og þakka ég henni mikið fyrir það.

Hvað stendur mest uppúr þegar þú lítur til baka?
Klárlega keppnisdagurinn, þetta var það rosalega gaman.


Íslandsmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna 2011  Myndir teknar á Íslandsmóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna í Háskólabíói 21.-22. apríl 2011.  Gyða Henningsdóttir


Varst þú með einhverja styrktaraðila?
Nei.


Hversu langt undirbúningstímabil tókst þú, fannst þér ekkert erfitt að skera niður?
Eins og ég sagði áðan var ég búinn að lyfta í tæpt ár þegar ég keppti. 12 vikum fyrir mót fór ég að taka út brauð og gos svo 10 vikum fyrir mót fór ég að gera þetta almennilega en ég tók alltaf einn nammidag í viku. Ég get eiginlega ekki sagt annað en að maturinn hafi verið erfiðasti parturinn i sambandi við niðurskurðinn, það er svo margt sem ekki má. Svo hafði þetta mjög mikil áhrif á andlegu hliðina og mér finnst eins og fólk sem ætlar að keppa ætti að undirbúa sig vel á þann hátt og kynna sér málið vel áður enn það byrjar á þessu. En þegar uppi er staðið var þetta alveg rosalega gaman, bara muna að taka einn dag í einu.


Myndirðu þá leggja á þig að keppa aftur, var þessi tími þess virði?
Já algjörlega, þetta var svo ofboðslega gaman. Svo stefni ég á að keppa aftur í nóvember og örugglega eitthvað eftir það.


Hvernig var mataræðið þitt fram að keppni?
Mataræðið inniheldur helst kjúkling,
fisk, hrísgrjón, próteinhristinga, hrökkbrauð, hafragraut og slíkt.
Gyða Henningsdóttir


Hefur þú einhver ráð fyrir stelpur sem hafa áhuga á módel fitness, og langar til þess að keppa? Byrja á að tala við einkaþjálfara eða fá lyftingarprógram, síðan laga allt matarræði til. Ég hvet allar stelpur sem hafa áhuga á að keppa að stefna þá allavega að því og sjá svo hvernig fer, hafa engu að tapa.