Viðtal við Elvu Katrínu Íslandsmeistari Módel Fitness -167cm Senda í tölvupóst

Úrklippa af alma-run.blogspot.com/

Monday, July 4, 2011

Elva Katrín

Elva Katrín Bergþórsdóttir er núverandi íslandsmeistari í módel fitness -167 cm. Alveg brjálæðislega flott stelpa að mínu mati og hér að neðan eru svör hennar við nokkrum spurningum sem ég sendi henni.
Annars langar mig að benda á bloggið hennar Agnesar Kristínar fyrir þá sem vilja skoða fleiri svona "viðtöl" við módel fitness stelpur. 


Hvenær og hversvegna ákvaðst þú að þú ætlaðir að keppa í módel fitness?
Ég hef alltaf jaft mjög mikinn áhuga á líkamsrækt og flestum íþróttum. Ég æfði fimleika og fótbolta en þegar áhuginn á því fór að minnka vantaði mig eitthvað nýtt til þess að vinna að. Ég hafði haft áhuga á þessu nokkuð lengi og ákvað að slá til.


Hvernig var undirbúningstímabilið þitt? Var mikill munur á því fyrir þitt fyrsta mót og fyrir þitt annað mót?

Ég byrjaði að skera niður uþb 8-10 vikum fyrir mót. Ég lyfti 6x í viku og svo þegar nær dró fór ég að fara 2x á dag. Þá lyfti ég alltaf á morgnanna og tók brennslu seinnipartinn. Undirbúningurinn fyrir Bikarmótið og Íslandsmótið var nánast sá sami en fyrir Bikarmótið hafði ég ekki verið að lyfta nema í nokkra mánuði af einhverju viti. Þannig strax eftir mótið í nóvember fór ég að byrja borða vel og lyfta frekar þungt og bætti mig mjög mikið á stuttum tíma.
Hvernig var mataræðið fram að keppni?
Þegar ég er ekki á niðurskurði borða ég ágærlega hollt en aftur á móti mjög mikið. Ég er ekki beint nammigrís en ég get næstum því borðað endalaust af mat og ís. Það hefur bæði sína kosti og galla. En kostirnir við það að borða mikið þegar ég er ekki á niðurskurði eru þeir að þá gegnur mér vel að byggja upp og líka skera niður því brennslan er í góðu lagi. Mataræðið sem ég var á var alls ekkert brutal, en samt gat ég aldrei beðið eftir “nammideginum” mínum og tók hann alltaf einu sinni í viku fram að keppni.

Hver er “uppáhalds” maturinn þinn þegar þú ert að undirbúa þig fyrir keppni?
Hafragrautur, án nokkurs vafa. Ég fékk meira að segja að breyta matarprógramminu mínu svo ég gæti borðað meira af honum.



Ljósm. ©Arnold Björnsson



Hversu miklum pening ætti maður að gera ráð fyrir að þurfi í þennan pakka? Sundfatnaður, skór, brúnka, neglur og fleira?
Þetta er alls ekki ódýrt sport og það safnast gríðarlega þegar saman kemur. Allt það sem þú taldir upp plús íþróttafatnaðurinn, förður og hárgreiðsla líka. Ég er ekki frá því að það hafi farið í kringum 100 þúsund kall í þetta alltsaman. Að frátöldu því sem fólk er að borga í líkamsræktarkort og þjálfun, þeas ef fólk er með þjálfara. Hvað stendur mest uppúr þegar þú lítur til baka?
Það að hafa bætt mig svona mikið á milli móta. Gaman að uppskera það sem maður hefur sáð.

Hefur þú hugsað þér að halda áfram að keppa?
Já þótt ég sé ekki búin að ákveða hvort ég verði með í nóvember þar sem ég er t.d að fara í útskriftarferð í byrjun september sem gæti kannski raskað undirbúningnum eitthvað en það kemur allt í ljós.

Hefur þú einhver ráð fyrir stelpur sem hafa áhuga á módel fitness, og langar til þess að keppa ?
Aðal málið finnst mér að byrja á því að borða rétt og fara lyfta af krafti til þess að byggja sig upp og hafa svo áhyggjur af niðurskurðinum þegar að honum kemur. Þetta er krefjandi en bara gaman og þess vegna hvet ég allar þær sem hafa áhuga og metnað til þess að prófa :)



Síðast uppfært: Fimmtudagur, 11. ágúst 2011 22:49