Jóhann Pétur Hilmarsson 15.júlí 1971 - 175 cm
Ljósm. Icefitness.is
Jóhann Pétur vann nýlega Icefitness sem haldin var í Reykjavík en sjálfur býr hann á Akranesi ásamt konu sinni, Rósu Björk og börnum þremur, Júlíu Björk, Símoni Orra og Tristan Sölva. Ræktin er hans aðal hobbý og er hann sólsjúkur í meira lagi og finnst frábært að liggja einn heima eftir morgunæfingu og glápa á sjónvarpið.
Skemmtilegasta sem þú veist um/gerir? Elska mótorhjól , en hef ekki átt neitt í 10 ár.
Ferilskrá: Ég keppti fyrst 2003 í Bikarmóti Galaxy og lenti í 13 sæti, fór strax 2 vikum seinna á Íslandsmót IFBB og lenti í 5 sæti. Fór svo sama ár í Galaxy fitness í Smáralindinni þar sem allir sterkustu voru með og lenti í 6 sæti. Fór svo á Bikarmót Galaxy 2004, ný kominn frá Kanarí og náði á pall í þriðja sæti, (1 eða 2 stigum frá öðru sætinu.) Næst var það Íslandsmót Galaxy sama ár (2004) og lenti þar í 3 sæti á eftir Arnari og Ívari. Var svo aftur í 3 sæti árið eftir (2005) , þá var reglunum breytt , með samanburðinn og vægi hans. Vann síðan Íslandsmeistara titil Icefitness núna 2006.
Ljósm. Icefitness.is
Ljósm. Hjalti Úrsus Íslandsmót Galaxy Fitness 2003 varð í 6.sæti
Atvinna ? Ég er matreiðslu maður.
Varstu í einhverjum íþróttum áður en fitnessið hófst? Já ég æfði sund frá ca 10 ára til 17 – 18 ára .
Ljósm. Fitness.is
Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Hvernig datt þér í hug að fara keppa ? Garðar Sigvaldason bað mig að koma með sér í þetta, ég sló til og sagði öllum frá því svo ég gæti ekki hætt við. Sé ekki eftir því.
Segðu aðeins frá því hvernig fyrsti undirbúningurinn fyrir fitness-mót gekk og hvernig mótið sjálft var/fór Ég brenndi í klukkutíma alla morgna og lyfti kl 5. Borðaði haframjöl og kjúkling og nánast ekkert annað, engin fæðubótarefni nema Burner frá Perfect. Ég og Garðar vissum ekki neitt í okkar haus um mataræði, lyftingarnar voru með of mörgum repsum og of lítil hvíld á milli setta. Sjálft mótið var mjög skemmtilegt, ég var alveg hrikalega stressaður, samanburðurinn var í grænmetis deildinni í hagkaup minnir mig, og ég hélt að það væri að líða yfir mig þegar við vorum á leiðinni á sviðið, (ég er mjög lítið fyrir að hafa mig í frammi.) Ég hugsaði bara hvern andskotann er ég búinn að koma mér í. Það sem klikkaði á þessu móti var liturinn, ég miklu ljósari en allir hinir , og sást því ekkert á sviðinu enda lenti ég í þrettánda sæti í samanburðinum (hefði getað verið ca 5 -7)
| | Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net |
Hvenær vannstu þinn fyrsta titil ? Hvernig var tilfinningin ? Núna 2006, það var mjög ljúft, ókei alveg geggjað, hvetur mann hrikalega áfram.
Hver eru algengustu byrjendamistökin ? Þekkingarleysi á hvað er prótein , kolvetni (einföld-flókin) og ekki nóg af góðri fitu í mataræðinu. Of léttar lyftingar og of langar brennslur.
 | | Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net |
Finnur þú fyrir einhverjum fordómum/öfundsýki vegna fitness Nei, ég held að hver einasti Akurnesingur sé búinn að óska mér til hamingju, og ég finn mikinn stuðning frá öllum hérna heima.
 | | Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net |
Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við fitnessið ? Fólk heldur ekki að það sé mikil lyfjaneysla í fitness. Það er yfirmaður lyfjanefndar ÍSÍ (sem ætti að reka á stundinni) sem er að búa til þessa þvælu í blöðunum, fitness greinin er mest lyfjaprófaða íþróttagreinin á landinu með 18% prófað en bara 1% fall. Engin önnur íþróttagrein kemst nálægt þessu. Ég meina það eru nú líka 99% keppanda í fitnesinu sem er bara venjulegt fólk að halda sér í formi, og detta svona inn í fitnesið.
 | Ljósm. Gummi Stóri - vodvafikn.net
| Hvað er næst á dagskrá ? IFBB 2007 á Akureyri
Ætlarðu að keppa á Íslandsmeistarmótinu í apríl eða halda þig við Icefitness? Keppa í apríl. Og auðvitað í Icefitness, læt titilinn ekki baráttulaust af hendi.
Hver eru framtíðarplönin ? Engin sérstök, ég verð í þessu á meðan ég hef gaman af þessu . Ég er með brjósk los neðst í bakinu, þannig að ég verð alltaf að æfa, annars verð ég bara rúmliggjandi kripplingur, og ekki viljum við það.
Líkamspartur í uppáhaldi Enginn, ég er kannski einna sáttastur við lappirnar, og kassann
Hvernig er æfingarvikan ? Dagur 1 -axlir Dagur 2 - bak Dagur 3 - lappir Dagur 4 – brjóst og magi Dagur 5 - hendur Dagur 6 - frí Dagur 7 - frí
Hvað tekur þú langan tíma í undirbúning fyrir mót ? 16 vikur.
Hver er algengasta spurningin sem þú færð ? Engin sérstök, en ansi oft er meiningin , hvernig get ég gert þetta á auðveldasta máta.
Ljósm. Fitness.is
Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Þeim sem er sterkari en ég, helst svona 10 til 20% sterkari. Þá ertu alltaf að reina við eitthvað sem þú ræður eiginlega ekki við, og þá lætur árangurinn ekki á sér standa. (Benni Magg)
Finnst skemmtilegast/leiðinlegast að æfa: Mér finnst gaman að æfa allt nema brjóstið, ég má ekki koma við það þá stækkar það, ég gæti orðið einsog ég veit ekki hvað ef ég myndi æfa það alltaf.
Ljósm.Icefitness.is
Ráð til nýliða í fitness ? Drífðu þig bara í fyrsta mótið , síðan skaltu fara að plana dæmið. Þá sérðu hvort þetta er fyrir þig og þú verður tíu sinnum ákveðnari eftir fyrsta mót.
Fæðurbótaefni í uppáhaldi? Ég hef notað perfect, Ast og EAS sem eru öll mjög góð. Núna er ég að nota USN fæðubótar efni, þau eru rosalega fín, frábær lína með allt í boði. Það sem USN hefur framm yfir aðra að mínu mati er að það er alltaf allt sem þú þarf í hverri vöru, öll hjálpar efnin eins og glutamin, taurin, beta alanin og allt þetta dæmi. Og þau eru lang ódýrust miðað við gæði og innihald.
Nú hefur þú birst í auglýsingum fyrir himnesk hollusta segðu okkur aðeins frá því
Ég nota pgx trefjarnar með öllum kolvetnum sem ég borða,(nema í kringum æfingarnar.) drykkjunum og öllum mat. Þú lækkar blóðsykurinn þinn um allt að 75% með þessu, sem þíðir hámarks fitubrennsla allann sólarhringinn. Þeir hjá Himneskri hollustu vissu að ég var að nota vörurnar þeirra, og höfðu samband. Þannig var það (reyndar sendu þeir mynd út til framleiðanda pgx, og þeim leist víst vel á strákinn, og ég setti saman smá pistil um hvernig ég nota vöruna. Veit ekki hvað kemur út úr því.)
|