Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 15. nóvember 2007 00:00

Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir

12.júlí 1986 - 159cm


Ljósm. Fitness.is

Skemmtilegasta sem þú veist um/gerir?
Ferðast og vera með vinunum.

Ferilskrá:
IFBB Íslandsm.mót– Unglfl. vor 2004
IFBB Íslandsm.mót –Unglfl. vor 2005
IFBB Íslandsm.mót –Unglfl. vor 2006
IFBB Bikarmót - 164cm haust 2006

Atvinna ?
Gjaldkeri í Landsbankanum

Varstu í einhverjum íþróttum áður en fitnessið hófst?
Ekki af neinni alvöru, hef prufað margt en einhvern veginn aldrei fílað mig fyrr en ég fór að æfa í líkamsræktarstöð


Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Hvernig datt þér í hug að fara keppa ?
Ég byrjaði að æfa í World Class þegar stöðin í spönginni opnaði, ég var búin að vera að æfa í svona ár en var ekki alveg viss um hvað ég var að gera og fannst ég ekki sjá neinn árangur þannig mér var ráðlagt að fá mér einkaþjálfara. Ég hafði samband við Arnar Grant og fékk hann til að taka mig í þjálfun, ég var búin að vera að skoða myndir af keppnum á netinu og í blöðum og fannst stelpurnar alveg rosalega flottar, svo þegar ég heyrði að það ætti að vera unglingaflokkur um vorið ákvað ég að skella mér, og sé sko ekki eftir því


Ljósm. Fitness.is


Segðu aðeins frá því hvernig fyrsti undirbúningurinn fyrir fitness-mót gekk og hvernig mótið sjálft var/fór.
Undirbúningurinn gekk bara vel, ég tók 5 vikur í skurð, ég var náttla rosalega grönn fyrir og ekki með mikla vöðva, þannig ég hefði alls ekki mátt vera minni. Mér fannst þetta alveg rosalega erfitt, fannst alveg hræðilegt að fá ekki að borða nammi og svona, en fyrsta mótið var náttla aðalega til að fá reynsluna en ég lenti í 2.sæti og var alveg hrikalega ánægð með mig þá.
 

Hvenær vannstu þinn fyrsta titil ? Hvernig var tilfinningin ?
Ég vann ísl.m.mót IFBB 2006, það var æðislegt, ég ætlaði ekki að vera með á því móti en ákvað á seinustu stundu að slá til og það gekk svona rosalega vel.


Hver eru algengustu byrjendamistökin ?
Ég held að það sé bara að hlusta á og fara eftir ráðum frá öllum, það vilja allir vera að aðstoða mann og segja manni til sem er bara gott en ef maður ætlar að fara eftir því sem allir eru að segja manni þá endar maður bara í vitleysu, maður þarf að kunna að sigta úr upplýsingunum sem maður fær, það eru til svo margar mismunandi leiðir og það sem hentar einum hentar kannski ekki hinum, því verður hver og einn að finna út sína leið.


Finnur þú fyrir einhverjum fordómum/öfundsýki vegna fitness

Maður heyrir það alveg útundan sér að fólk talar um að allt þetta fitness-“lið” sé allt á einhverjum efnum einsog fréttin sem kom í blaðinu fyrir stuttu um að meirihluti fitness-keppanda fellur á lyfjaprófum, sem er náttla kolrangt. Fólk hefur líka oft mikla skoðun á því sem maður er að borða og heldur því fram að maður sé að borða alltof lítið þrátt fyrir að í rauninni sé ég að borða mun meira en flestir yfir daginn, ég borða bara oftar og minna í einu. Hef líka oft fengið að heyra hvort ég ætli nú ekki að fara að hætta þessari vitleysu, þetta geti nú ekki verið hollt fyrir mann.

Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við fitnessið ?
Fólk virðist oft rugla fitnessinu saman við vaxtarækt og halda að maður borði ekkert.


Ljósm. Fitness.is


Hvað er næst á dagskrá ?
Næst á dagskrá er bara að undirbúa sig fyrir páskamótið

Hver eru framtíðarplönin ?
Ég ætla að halda áfram að keppa og halda áfram að bæta mig. Ég er náttúrulega það ung og nýbyrjuð að ég á alveg fullt eftir.

Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net


Líkamspartur í uppáhaldi ?
Ég er yfirleitt sáttust með þríhöfðann

Hvernig er æfingarvikan ?
Dagur 1 : Brjóst og þríhöfði
Dagur 2 : Brennsla
Dagur 3 : Axlir og fætur
Dagur 4 : Brennsla
Dagur 5 : Bak og tvíhöfði
Dagur 6 : Brennsla og fætur án þyngda
Dagur 7 : Frídagur

Ég reyni að skipta reglulega um prógram en núna í niðurskurðinum æfi ég svona auk þess sem ég tek brennslu alla morgna kl.6 og svo auka brennslu eftir lyftingar


Hvað tekur þú langan tíma í undirbúning fyrir mót ?
Ég reyni að ná 12 vikum

Hver er algengasta spurningin sem þú færð ?
Hvað á ég að gera til að fá minni læri og stynnan rass?

Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
Fólki með metnað sem peppar mig upp á æfingum, það þarf ekki endilega að vera í sömu hugleiðingum og ég bara að það nenni þessu, ég nenni ekki að draga fólk áfram.

Finnst skemmtilegast/leiðinlegast að æfa:
Mér finnst skemmtilegast að æfa þríhöfða en leiðinlegast að æfa fætur, líklega vegna þess að ég er alltaf frekar ósátt við fæturnar á mér, en þess vegna því meiri ástæða til að leggja áherslu á þær.

Með hverjum ertu að æfa ?
Er að æfa með Guðrúnu Björg núna

Hvar ertu að æfa ?
Er að æfa í World Class


Ljósm. Einkasafn


Ráð til nýliða í fitness ?
Númer eitt er að hafa gaman að þessu, þetta á ekki að vera kvöl og pína. Ekki hika við að leita upplýsinga en vertu þó varkár gagnvart þeim ráðum sem þér eru gefin.