Senda í tölvupóst
Laugardagur, 24. nóvember 2007 00:00

Ferðasaga - Hildur Edda á námskeiði hjá Monicu Brant

F.E.M. Camp – hosted by Monica Brant


Ég ætla hér með að deila þessari líka stórkostlegri reynslu minni af þessu svo kallaða fem-camp námskeiði sem ég fór á í boði Monicu Brant og Lyndu Thoresen, en þær halda svona námskeið fyrir konur með nokkurra mánaða millibili. Námskeiðið sem ég fór á var dagana 7.-9. September 2007.

En svo ég byrji nú bara á byrjuninni þá flaug ég út á fimmtudagsmorgni til að geta verið komin út á fimmtudagskvöldi. En jújú, flug frá Íslandi til borg englanna tekur u.þ.b. 10 klst, og með öllu ferðalaginu um 15 klst, takk fyrir. En hvað leggur maður ekki á sig fyrir eitthvað sem tengist fitness, ha
Námskeiðið sjálft var hins vegar frá föstudagsmorgni til sunnudagseftirmiðdags, 7.-9. September eins og ég sagði áðan.


Föstudagsmorgunn 7. September
Mæting í registration/breakfast kl. 8am.
Það hentaði semsagt mjög vel hvað varðar morgunbrennslu að það var mæting kl 8, þannig að mín var auðvitað vöknuð upp úr 6 og mætt í svaka fínt gym sem var á hótelinu. Hitti þar einmitt eina konu sem var líka að fara á þetta námskeið, þannig að þarna var ég strax búin að kynnast einni. Hún sagði mér að hún hefði farið á mörg svona námskeið hjá nokkrum aðilum og að þetta væri bara snilld, alltaf hægt að læra eitthvað meira og meira nýtt. Jæja svo rétt fyrir 8 mætti ég og þá var svona registration og morgunmatur. Það sem var í boði var: hafragrautur, eggjahvítur og vatn, ekki slæmt. Þarna hitti ég líka goðið sjálft, Monicu, og vááá hvað hún er flott, úfff... mann dreymir allavega um svona líkama einn daginn Allavega þá voru þarna um 15 stelpur/konur á þessu námskeiði og allar í fínu formi að sjálfsögðu. Þarna var farið yfir helstu atriðin sem áttu að vera á námskeiðinu og við fengum möppu með dagskránni og öllu því sem við vorum að fara að gera. Þannig að næst á dagskrá var nutrition seminar. Ekkert smá klár næringarfræðingur/þjálfari sem var með þennan fyrirlestur, Kim Oddo heitir hann og er mjög þekktur þarna úti í fitness-geiranum. Hann var með snilldarfyrirlestur um næringu almennt og svo fór hann í gegnum fitness matarræðið og hvernig hann þjálfar sínar stelpur og nærir þegar hann er að undirbúa þær fyrir mót. Ég hafði auðvitað ekki við að skrifa niður punkta og fróðleik og þetta geymi ég auðvitað og passa vel upp á ef maður skyldi nú þurfa að glugga í þetta einn daginn og rifja upp.


Þegar fyrirlesturinn var búinn rúmlega 11, og við allar auðvitað búnar að spurja að ÖLLU sem við þurftum að vita þá var smá break til að við gætum tekið saman æfingadótið okkar, fengið okkur að borða og verið tilbúnar til að fara í gymmið kl 12:30, að sjálfsögðu með nesti og allt reddí til að eyða deginum í gymminu. Ferðinni var heitið í Gold‘s Gym, sem er mjög þekkt gym þarna úti. Fórum í smá skoðunarferð um stöðina og þetta var auðvitað hjúts, vá aldrei farið inn í svona stórt gym. Ég ekki frá því að þetta hafi verið svona helmingi stærra en Laugar.


Frá kl. 1pm-2:30pm var work out (loksins back &arms. Monica og hjálparhellurnar hennar fóru með okkur í gegnum allar æfingarnar og svo var okkur skipt í nokkra hópa þannig að við vorum svona 5 saman að lyfta. Margar nýjar æfingar, en líka margar gamlar góðar sem klikka ekki. Þegar þetta work-out session var búið þá tók við svolítið sem mér var búið að kvíða ansi mikið fyrir. Stage poise & presentation I, úfff… Ég hafði semsagt aldrei farið svona í gegnum þessar pósur og allt það, þannig að auðvitað var ég stessuð + það að ég er ekki þessi hælatýpa þannig að þetta var eiginlega tvöfalt challenge fyrir mig, æfa pósurnar og það á HÆLUM, gvuð. En eftir á sá ég auðvitað að þetta var bara nauðsynlegt og geðveikt skemmtilegt enda vorum við bara látnar gera aftur og aftur og aftur þangað til við vorum farnar að halda smælinu og gera pósurnar eins og átti að gera þær, fjúkk. Allavega þurfti ég á þessu að halda því gvuð má vita hvernig ég hefði farið að þessu annars. Þetta stage-poise & presentation var einn og hálfur tími en þá tók við annað work-out session.


Í þetta skiptið voru það legs, og þá fórum við bara beint í hópana okkar og tókum á því! Eftir það var síðan heimferð á hótelið en þá höfðum við u.þ.b. einn og hálfan tíma til að gera það sem við vildum. Semsagt borða, fara í sturtu og það allt til að vera tilbúnar í Business of Fitness Q&A (questions &answears) sem átti að vera frá 8pm-9:30pm. Ég og ein önnur vorum nú samt ekki alveg búnar að fá nóg af work-outi yfir daginn þannig að við ákváðum að taka smá útiskokk og litast um í hverfinu, það endaði nú reyndar þannig að við villtumst aðeins en við komumst heim að lokum og náðum sturtunni og smá næringu áður en kl. varð 8pm.


Í þessu Business of Fitness Q&A var bara allt rætt milli himins og jarðar, innan fitness-geirans auðvitað og Monica og þær stöllur sátu bara fyrir svörum. Hún sagði okkur mikið frá sinni reynslu og hvernig hún er búin að þróa æfingar og undirbúninginn sinn í gegnum árin. Við hefðum auðvitað getað talað endalaust því það er svo margt í þessu, en maður fór sáttur út þegar þetta var búið því maður var auðvitað búin að fá svör við öllu sem maður þurfti að vita og meira en það.
En eftir svona dag var ég alveg búin á því og fór að sofa upp úr 10 um kvöldið, ekkert betra en að sofna dauðþreyttur og útkeyrður eftir æfingar


Laugardagur 8. September.
Ég vaknaði um 6 og tók morgunbrennsluna mína því það var ekki mæting fyrr en kl. 9pm í rútuna. Fékk mér líka morgunmatinn góða, hafragrautinn og eggjahvíturnar, ekki slæmt. Það sem var fyrst á dagskrá þennan daginn var beach work out, og það hljómaði auðvitað mjög vel. Vorum keyrðar í áttina að ströndinni en tókum svo létta skokk-upphitun alla leið. Á ströndinni hittum við Stephen Bauer, en hann er mjög fær (tennis) þjálfari og er með margar stórstjörnur í þjálfun hjá sér. Hann var einmitt þjálfarinn hennar Monicu árið 1998 þegar hún var að æfa fyrir eitt af sínum mótum. Hann tók okkur í tveimur hópum í allskonar spretti og hlaup á ströndinni og mest auðvitað fótaæfingar. Ekkert smá gaman, smá keppni auðvitað og svo hópmyndatökur og allt sem fylgir því. Svo röltum við með honum eftir ströndinni og spjölluðum við hann og vá ekkert smá klár kall, veit örugglega nánast allt um þjálfun. En jæja þegar maður var kominn með nóg af sandinum og stöndinni þá var ferðinni heitið aftur á hótelið til að við gætum farið og skolað af okkur sandinn fyrir hádegismatinn. Fengum svo auðvitað smá break til að gera okkur reddí því að strax eftir lunch áttum við að fara í Gold’s gym aftur eins og daginn áður.


Á meðan hádegismaturinn var borðaður með bestu list sem voru btw. þvílíkt hollar tortillur með kjúklingi og grænmeti og salsasósu og öllu sem því fylgir var maður þarna frá BSN fæðubótarefnum og hann var með fyrirlestur og kynnti fyrir okkur þeirra helstu vörur og þá sérstaklega það sem Monica notar og mælir með. Er eimmitt búin að vera að prófa allar “prufurnar” sem við fengum, og þetta eru snilldar próteinsjeikar og vörur, mæli tvímælalaust með þeim. Hann talaði auðvitað og talaði og við auðvitað mjög málglaðar og spurðum og spurðum endalaust. Þarna voru eimmitt líka teknir niður margir viturlegir punktar og nokkrar “uppskriftir” að góðum sjeikum Eftir þennan kynningarfyrirlestur fórum við í gymmið – Gold’s gym, sama og við höfðum verið í daginn áður.


Frá kl 2pm-3:30pm var work out – chest &shoulders og sú æfing virkaði auðvitað bara eins og hinar. Það er a segja, Monica og co. fóru í gegnum æfingarnar með okkur og svo fórum við í hópana okkar og lyftum. Þegar búið var að taka allsvaðalega á því þá var önnur svona stage & poise presentation, kl 3:30pm-5:30pm nema núna var kominn dómari og allt, úfff… Hann átti semsagt að dæma okkur bara eins og hann væri að dæma á móti og auðvitað segja okkur hvað var vitlaust og hvað ekki. Vorum látnar labba ein og ein fram og gera pósurnar og halda smælinu, gvuð hvað það er erfitt Svo kom þarna líka önnur fitness drottning, Maggie, sem hefur keppt oft áður og hún er líka suit-designer og er eimmitt að sauma bikiníið hennar Monicu fyrir næsta mót. En allavega, eftir margar umferðir var maður bara orðinn nokkuð góður í pósunum og þvílíkum framförum sem við tókum allar. Ég var bara nokkuð ánægð með mig miðað við að hafa ekki gert þetta áður.


En jæja þegar það var búið þá var nú verslað aðeins í Gold’s gym því þetta var seinasta ferðin okkar þangað. Keypti nokkrar buxur og æfingaföt og svona, maður á nú aldrei nóg af því. Svo var bara break kl. 6pm-7:30pm og þá var bara sturta og eitthvað dúllerí þangað til Modeling 101 seminar byrjaði kl. 7:30pm. En þar var semsagt kominn ljósmyndarinn okkar, David Ford og nokkrir aðrir aðilar til að kynna alls konar húðvörur og hárvöru sem við kemur model-hlutanum í öllu þessu fitness. Svo var Maggie líka þarna með fullt af bikiníum og sundbolum til að sýna okkur, mörg ekkert smá flott og mann langaði eignlega bara í þau öll sko, væri ekki leiðinlegt að eiga þetta bara á lager Þarna fórum við líka í hópmyndatökur og fengum fullt af svona prufum og dóti frá hinum og þessum.
Svo í kjölfarið á því var eiginlega bara svona umræðutími, spjölluðum við þessa aðila sem voru þarna og ræddum um allt sem maður var forvitinn að vita. En eins og kvöldið áður þá var maður alveg búinn á því og farið snemma að sofa, eða um 10 leytið minnir mig.
 
 
Sunnudagur 9. September
Vaknaði í morgunbrennsluna mína, og ákvað að fara bara út að skokka í staðin fyrir að fara í gymmið þarna á hótelinu. Skokkaði góðann hring þarna í hverfinu og fór svo í morgumatinn góða Sunnudagurinn var ekki eins pakkaður og skipulagður og hinir dagarnir höfðu verið þannig að maður var bara í dúlleríinu um morguninn. Kvöldið áður höfðum við fengið úthlutað tíma hjá Kim Oddo næringarspecialistanum okkar og minn tími var ekki fyrr en 10:30 og svo var myndataka kl. 13.

Appointment – Kim Oddo, nutrition specialist kl. 10:30. Hann byrjaði á að ummálsmæla mig og fitumæla mig og svo talaði ég við hann um mín markmið og allt það sem mig langaði að gera í framhanldinu og hann gaf mér auðvitað góð tips og ráð. Ég punktaði auðvitað allt niður sem hann sagði mér að gera og ég ætla að fara eftir hans ráðum að einhverju leyti þegar ég fer í niðurskurð. Hann var með ákveðnar hugmyndir með margt, og sumt mjög ólíkt því sem ég hef fengið ráðlagt annars staðar. En ég ætla auðvitað bara að prófa allt saman og sjá hvernig mér líkar. Hann er allavega þaulreyndur í þessu og hefur sent margar stelpur á svið, þannig að ég treysti honum fullkomlega. Hann er líka í því að búa til prógrömm og selja og þannig en ég var nú ekki alveg tilbúin til að fara að borga fúlgur fjár fyrir það þannig að ég lét þennan hálftíma með honum duga. Margt hægt að ræða á 30 min, fékk allavega aðvita allt sem ég þurfti og langaði að vita

Minn næsti skipulagði timi var ekki fyrr en kl. 13 en þá átti ég að fara í myndartöku, gvuð minn góður, ekki alveg ég að pósa fyrir framan myndavélar. En það fylgir þessu þannig að nú var bara að duga eða drepast. Myndirnar tókust nú bara vel sko, ótrúlegt en satt og ég er nú bara nokkuð ánægð með nokkrar þeirra Þegar myndatakan var búin var nákmskeiðið eiginlega búið, þannig. En við vorum auðvitað allan eftirmiðdaginn að sniglast þarna um meðan hinar stelpurnar voru í sinni myndatöku og ég fór líka í mælingu til hennar Maggie sem saumar bikiníin, en hún ætlar að sauma á mig one-piece ógó flott, hlakka ekkert smá til að sjá hann. Fannst líka mjög gott að láta svona pro manneskju mæla mig því þá veit ég að mælingarnar eru alveg 100%. Restin af sunnudeginum fór nú bara í að versla þarna í nágrenninu og pakka niður og allt sem fylgir því. Þurfti að kaupa auka tösku því ég keypti allt of mikið af allskonar dóti, hmmm skrítið allt svo miklu ódýrara þarna úti þannig að það var um að gera að versla meðan maður gat.

Ferðalagið heim tók auðvitað óralangann tíma, en þetta var alveg þess virði og meira en það, því þarna lærði ég svo margt sem ég á eftir að geta nýtt mér á næstu árum og í framtíðinni. Ég mæli hikalaust með þessu fyrir hverja sem er, líka þær sem hafa keppt oft áður, því eins og skammstöfunin á námskeiðinu stendur fyrir er þetta; FUN, EDUCATION, MOTIVATION!!!

www.femcamp.net
www.monicabrant.com
www.lyndathorensen.com
www.maggiefit.com
http://www.bodybyo.com/kimoddo.asp