 Ljósm.Jónas Hallgrímsson
|
Björk Varðardóttir hreppti fimmta sætið á Norðurlandamóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna sem fram fór í Háskólabíó 19. október síðastliðinn. Björk var að keppa á sínu þriðja móti.
Björk starfar sem einkaþjálfari í World Class og hjá Artasan ehf. í EAS deildinni. Björkin eins og hún er oft kölluð er 23 ára og er í sambúð. Hún æfir í World Class turninum og æfingarfélagi hennar er Anna Bella Markúsdóttir. Björk segir að hún setji sér reglulega fyrir skýr markmið og vinnur markvisst að þeim sem hún setur sér fyrir hendur. Oft hefur henni reynst erfitt með skapið á meðan hún heldur ströngu mataræði á þjálfunartímabilum. Uppáhalds maturinn hennar er humar og nautakjöt með ljúffengu meðlæti.
Æfingarskipan Bjarkar er hörð en hún æfir fimm daga vikunnar. Fyrir mótið tók hún morgunbrennslu og lyfti síðan síðar um daginn þannig að meðaltali æfði hún tvisvar sinnum á dag en tók sér frí um helgar. Þegar styttist í mót þá bætir hún við brennslu um helgar. Að öðru leiti æfir hún einu sinni á dag alla virka daga en það getur breyst eftir markmiðum. Meðaltíminn sem hún tekur í æfingarnar eru um klukkustund en reglan er að taka 15-20 mínútna brennslu eftir lyftingar.
Björk byrjaði að æfa inn á líkamsræktarstöð þegar hún æfði handbolta, 14 ára gömul. Henni hefur alltaf fundist vel þjálfaður líkami virkilega heillandi og því hefur mæting í ræktina verið skemmtileg. Eftir að hún var kominn á þann stað að hún var grönn og í ágætis formi þá fór hún að leita að frekari áskorunum. Það má segja að það markaði upphaf þess að hún fór að hafa áhuga fyrir fitness og almenn líkamsrækt varð að keppnismáli. Hún hefur einnig unnið mikið á líkamsræktarstöðvum þannig að þetta er og hefur lengi verið hluti af hennar starfi. Hún hefur mikinn áhuga á öllu sem því viðkemur fitness hvort það sé hreyfingin sjálf eða mataræðið.
Björk segir að henni finnst eins og það sé margt sem má gera betur fyrir fitness sportið á Íslandi. Það vantar að fjölmiðlar komi meira inn í sportið, hvort sem það er þetta eða eitthvað annað. Það eru ákveðnar íþróttir sem njóta áhuga fjölmiðla mun meira en aðrar greinar, annars er að mörgu leyti mjög vel staðið að íþróttamálum á Íslandi. Til að mynda erum við með framúrskarandi líkamsræktarstöðvar og aðstaðan hér er mun betri en fyrirfinnst erlendis. Íslendingar eiga líka góða sérfræðinga og frábæra þjálfara en máli skiptir að eiga gott aðgengi að úrvals næringu og það eigum við en fólk verður að velja að neyta hennar hvort sem um ræðir afreksfólk eða almenna einstaklinga sem huga að heilsunni. Björk segir að það sem skilur að afreksfólk í íþróttum frá meðalmanninum sé að vera ekki með neinar afsakanir.
Björk segist sækja flestan fróðleik um fitness og þjálfunarskipan til reyndra aðila sem hafa þekkingu og reynslu og mælir með því að aðrir sem hafa áhuga á sportinu geri slíkt og hið sama. Eins les hún sér líka mikið til á Netinu og fleira. Algengasta næring Bjarkar á þjálfunartímabili er hafragrautur á morgnana og það er fastur liður síðan borðar hún mikið skyr, ávexti, kjúkling, fisk, hrísgrjón og EAS fæðubótarefnin eru ómissandi. Hún hefur það fyrir reglu að fá sér alltaf kolvetnamáltíð eftir æfingar og hreint prótein fyrir svefn. Björk segir nammidagana nauðsyunlega, þá er allt leyfilegt innan vissra marka en hún nýtir sér þessa daga til þess að "shokkera" líkamann og eins til að uppfylla sætindaþörf sína enda mannleg eins og við öll. Reglan er sú að teygja nammidaginn aldrei lengur en einn dag!

Dæmigerður matseðill Bjarkar á þjálfunartímabili er svona:
Máltíð nr 1: Haframjöl 50 gr + hreint prótein, 8 stk rúsínur í létt soðið vatn.
Máltíð nr 2: Próteinsheik / próteinpönnukökur.
Máltíð nr 3: oft er þetta máltíð eftir æfingu, þá er það kolvetnamáltíð oftar en ekki er Nings eða maður lifandi fyrir valinu.
Máltíð nr 4: Ávöxtur t.d epli + hreint prótein eða skyr.
Máltíð nr 5: Eggjahvítur 4 stk / kjúklingur niðurskorinn.
Máltíð nr 6: Kvöldmatur – reyni að spara kolvetnin og taka frekar inn fitu, mjög vinsælt hjá mér er ofnbakaður lax með gufusoðnu brokkolí og grænmeti. Kjúklingur eða þá eggjabökur með sveppum, sellerí, spínat og fleira.
Hreint prótein fyrir svefn, fyrir svefnin fæ ég mér líka Udo´s oil, bæti því oftar en ekki út í próteinið.
Björk stefnir á Bikarmót IFBB 22. nóvember næstkomandi en það er haldið í Háskólabíó. Hennar helstu styrktaraðilar eru EAS, Nings, Ulta Tone (heilsubyltingin) og World Class.
Björk segir að það er alveg sama hvað maður tekur sér fyrir hendur að þá skiptir það mestu máli að maður sé sáttur við þá ákvörðun sem maður tekur.
Viðskiptavinir EAS geta leitað ráða hjá Björk alla daga vikunnar eftir hádegi í verslun EAS í Suðurhrauni 12a
Viðtal er tekið af Örvari Geir Friðrikssyni (starfsmaður hjá EAS)