Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 06. nóvember 2008 23:10

Sævar Inga Borgarsson

2.desember 1974 - 172cm

Sævar Ingi Borgarsson
Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net


Sævar Ingi er fæddur og uppalinn í Keflavík, Hann vinnur sem slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann býr ásamt kærustu sinni í Keflavík og eiga þau von á barni á allra næstu dögum og vonar hann að barnið geri sér það ekki að koma í heiminn á mótsdag. Hann á einnig 5 ára gutta sem heitir Aron. Sævar er þrjóskur og gefst aldrei upp á því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Sævar hóf íþróttaferilinn 5 ára gamall í fótbolta og öllum öðrum hugsanlegum íþróttum en þegar hann komst í meistaraflokkinn ákvað hann að einbeita sér að fótboltanum. Vegna mikilla meiðsla neyddist hann til að  hætta 27 ára. Þá fór hann að einbeita sér að lyftingum en hann hafði alltaf verið að lyfta meðfram boltanum og fljótlega tók hann þá ákvörðun að taka þátt í fitness. Hann leiddist einnig út í Kraftlyftingar eftir að búið var að hvetja hann til að taka þátt. Þrautabrautin í Icefitnessinu gekk vel hjá honum en hann sá að til að geta einhver tíma unnið þyfti hann að bæta sig í samanburðinum. Hann fór því að einbeita sér að kraftlyftingunum og hvíla fitnessið til að þroska skrokkinn.

Sævar Ingi Borgarsson


Nú sigraðirðu Icefitness keppnina á síðasta ári og ætlar að keppa aftur í ár, hver er helsti munurinn á þér frá því í fyrra ?

Ég myndi segja allt ég er sennilega í mínu besta formi sem ég hef verið í.  Í samanburðinum er ég orðinn skornari að ég held og mikið skarpari.  Þrautarlega séð hef ég aldrei verið sterkari því ég tók svo góðann undirbúning fyrir niðurskurðinn sem hefur skilað mér þessu formi. Í fyrra var ég að skríða upp úr erfiðum bakmeiðslum eftir ljótan árekstur sem ég lenti í og var því að endurhæfa mig til að geta æft og keppt en síðan betur fer þá gekk það upp sem leiddi til sigurs í fyrra

 
Hvern telurðu vera þinn helsta andstæðing í keppninni í ár ?

Þessi keppni verður mjög hörð og ég myndi segja að það væru Kobbi(Jakob Már) og Arnar Grant.  Svo Þarf maður alltaf að fylgjast með öllum, sérstaklega þeim sem maður veit ekkert um. 

 

Hvernig æfðirðu þig fyrir þrautina sem verður í keppninni ?

Sævar Ingi Borgarsson
Ljósm. Kraftvelar


Það er svo sem ekkert sérstakt ég er búinn að reyna svo margar aðferðir til að líkja þrautina og æfa eftir því sem hefur að ég held ekki verið að gera neitt sérstakt.  Ég æfi upphífingarnar og dýfurnar mikið og brenni (hlaup) á morgnanna í stuttann tíma eða ca 12mín en á mjög háu tempói.  Það er sennilega aðalundirbúningurinn sem ég æfi en sennilega stærsti þátturinn er hvernig maður fer í hana og best er að fara í hugleiðslu nokkrum sinnum á dag hvernig maður ætlar að fara í hana.  Það er sennilega að gefa bestu raunina


Hvað finnst þér erfiðast við þrautina ?
Auðvitað segir maður kaðallinn.  En í sannleika sagt þá held ég að erfiðast sé að halda réttu tempói svo að maður springi ekki í kaðlinum.  Það getur verið erfitt að bremsa sig niður þegar maður getur farið hraðar og að fara of hratt í henni er dauðadómur. Halda réttu tempói í þrautinni

Hvernig gengur að samhæfa heimilslífið við æfingar og matarræði ?

Það gengur mjög vel því ég á svo rosalega góða konu sem styður mig óendanlega og eldar meira segja mjög oft fyrir mig :)  Þetta væri aldrei hægt nema hafa hana með sér að styðja við bakið á mér og á hún helmingin í árangrinum!

Sævar Ingi Borgarsson
Ljósm. Kraftsport.is


Hvað er svona helst í matarræðinu hjá þér ?

Það helsta í matnum er haframjöl, mikið af grænmeti og ávöxtum, kartöflur, hrísgrjón. Svo er það naut, lax, kjúlli, eggjahvítur, eggjakaka og síðast en ekki síst Omega-3 frá Lýsi. Í fæðurbótaefnunum er ég að taka inn CLA, glutamin og whey prótein frá EAS hjá Bjarna sem hefur stutt mig vel. Passa bara að vera á mjög fjölbreyttu matarræði

Hvað finnst þér svo vera það erfiðasta við undirbúninginn ?

Það er auðvitað alltaf matarræðið en þegar maður er kominn með smá reynslu í niðurskurði verður það alltaf auðveldara og lykillinn að því er að hugsa ekki hvað maður má ekki borða heldur hugsa um hvað maður má borða og reyna að elda það vel og gera það gott.  Annars er þetta bara lífstíll sem maður velur sér og ef maður getur ekki haldið haldið sér inn á þeirri braut þá kannski er spurning hvort maður sé ekki bara á vitlausri braut :)

Sævar Ingi
Ljósm. Vikurfrettir.is

Hefurðu keppt á mörgum kraftlyftingarmótum og hefurðu hugsað þér að keppa meira þar ?

Ég hef orðið íslandsmeistari í bekkpressu, íslandsmeistari í kraftlyftingum,  Ég er tvöfaldur heimsmeistari slökkviliðs og lögreglumanna í kraftlyftingum (barcelona 03´ og kanada 05´) og á 4 standandi heimsmet.  Bestu þyngdir mínar eru 192,5kg í bekkpressu,  270kg í hnébeygju, 272,5kg í deddinu og 735kg samanlagt.  Svo er ég margfaldur reykjanesmeistari í power og á mörg met þar.

Í sannleika sagt get ég ekki hugsað mér að keppa í kraftlyftingum að svo stöddu þar sem að mér finnst powerið hafi hrunið hérna á klakanum eftir að fógetinn fór frá okkur.  Það er eins og að hann hafi haldið öllu saman sem er því miður ekki í dag.  Í dag eru allir óvinir og reyna að rakka hvorn annan niður og það er ekki það sem ég vil taka þátt í.  Ég held að við allir sem eru í powernum eiga sök á því hvernig staðan er.  Og smá tilvitnum í Benna Tarf þegar hann var í viðtali eitt sinn sagði hann að "sameinaðir stöndum við og sundraði föllum við" og vil ég skila þessu til allra power manna! Mér finnst samt eins og staðan sé að batna og vonandi eru bjartari tímar framundan. Það er aldrei að vita nema að ég keppi aftur en það verður bara að koma í ljós.


Hvað líkamspart ertu sáttastur með og hvað viltu bæta ?

Ég æfi alltaf þannig að ég æfi alltaf mest gallanna mína er svo ég er nokkuð jafn svo í dag er ég sáttur en eftir mót þá ætti ég að geta svarað þessu betur.

Hvaða íslensku keppendur finnst þér vera áberandi flottir ?

Það er einn maður sem ber höfuð og herðar yfir aðra og það er Kiddi Sam.  Hann er svo mörgum stöndördum fyrir ofan aðra í samanburði að það er ekki eðlilegt. 

Sævar Ingi Borgarsson

Hvað væri hægt að gera til að styrkja fitnessið á Ísland?

Komast inn í ÍSÍ og þannig fáum við meiri umfjöllun á t.d Rúv,  fleiri styrki o.sv.frv.  En ég held að það væri best að fá bara eitt mót, eitt samband og í því væru menn kosnir sem myndu vinna að bætum keppnum verðlaunum og styrkjum.  Engan sem á sambandið og er einræðisherra í öllum ráðum.  Það er fullt af fólki sem vill bæta fitnessið en getur það ekki því að þau komast ekki að!  Þó vil ég segja að Andrés og Lára eru rosalega sanngjörn og endalaust gagnrýnin á sjálfa sig til að gera betur og taka líka við ábendingum fordómalaust. Þau eru með flottustu mótin en því miður þá getur maður ekki keppt erlendis í því.

 

Hvað gætu keppendur gert til að styrkja sportið ?

Því miður er fátt sem við getum gert nema að styrkja áhugasambandi sem var stofnað núna fyrir ári eða knýja fram þær breytingar sem við viljum.  En að því sögðu þá þurfum við þá kannski líka að taka meiri þátt í að styrkja sambandið sem við keppum fyrir og hjálpa við að það komi meiri peningur inn í sportið því þessi mót sem t.d. Icefitness stendur fyrir eru mjög dýr.


Einhver ráð til nýliða ?

Leita ráða hjá þeim bestu til að verða best/ur, endalaus jákvæð sjáflsgagnrýni og leita eftir gagnrýni. Hógvær, þolinmæði og síðast en ekki síst æfa og læra meira en allir aðrir. Ekki hlusta á alla sérfræðingana í kringum þig, Einn dugar, ef það klikkar þá næsti


Ljósm Icefitness.is


Lífsmottó ?

Að gefast aldrei upp, æfa alltaf mestu gallanna og æfa meira en mótherjinn


Einhver lokaorð ? :)

Til allra sem hafa náð langt í þessum geira.  Verum dugleg að hjálpa nýliðanum og mesta andstæðingum okkar því þá lærum við meira, vitum meira og fá þá bónusinn að keppa á móti þeim bestu, tapa fyrir þeim bestu og VINNA þá bestu!


Hæð: lítill með stórt hjarta hehe :)

Keppnisþyngd: 75kg

Off-season þyngd: 82kg

Ferill:
6.sæti Þrautakeppni Intersport 2008
1.sæti Íslandsmót Icefitness 2007
Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2007
Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2006
Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2004
6.sæti Íslandsmót Galaxy Fitness 2003
4.sæti Bikarmót Galaxy Fitness 2003
3.-4.sæti Íslandsmót Galaxy Fitness 2002

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 29. nóvember 2009 20:30