Heiðrún Sigurðardóttir - Undirbúningaru fyrri HM 2007 Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 20. júní 2007 00:00

 

Heiðrún er nýkomin heim frá Danmörku þar sem hún var í myndartökum fyrir dagatal. Heiðrún er nú í fullum undirbúningi fyrir Heimsmeistarmótið á Santa Susanna/Spáni sem verður haldið 24.september.

Heiðrún Sigurðardóttir er 24 sveitastelpa. Er hún búin að keppa í Fitness seinustu 5-6 ár. Hún er núverandi Íslandsmeistari kvenna í Fitness og er heilbrigðin uppmáluð þar sem hún hefur aldrei drukkið né reykt og alltaf verið á fullu í íþróttum. Áhugmál hennar eru vinir, fjölskylda og vera í sveitinni. Henni finnst fátt skemmtilegra en að ferðast og fær hún mörg tækifæri til þess í Fitness-inu þar sem Fitness-mót eru haldin reglulega útum allan heim. Uppáhaldsmaturinn hennar er mömmumatur og þá sérstaklega svínakjötið á jólunum

 

  

  

Heiðrún Sigurðardóttir
Fæðingardagur: 29 apríl 1982 Hæð: 167cm 

Skemmtilegasta sem þú veist um/gerir?
Vera í sveitinni er sveitastelpa í húð og hár!! Fara að veiða og svona!!!

Atvinna ? Einkaþjálfari og kennari í
Vaxtaræktinni á Akureyri. Kenni Body Combat , Body pump , Body Jam og fleiri tíma....

Varstu í einhverjum íþróttum áður en fitness-ið hófst?
Ég var að æfa frjálsar


Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Hvernig datt þér í hug að fara keppa ?
Flutti til Akureyrar 16 ára gömul og fór að æfa í
Vaxtaræktinni . Siggi þjálfari (Sigurður Gestsson) spurði hvort ég hefði áhuga á Fitness....keppti fyrst bara svona til að prufa var ekkert að undirbúa mig neitt þannig, langaði að vera með og sjá hvernig þetta væri. Ákvað 2 vikum fyrir mót að vera með og gekk mjög vel. En á fyrsta mótinu sem ég tel sem mitt fyrsta mót varð ég í 4 sæti. Vann þar danslotuna, sem ég gerði síðan öll mót þar eftir. Sakna danslotunnar doltið mikið..


Hvenær vannstu þinn fyrsta titil ? Hvernig var tilfinningin ?
2003 það var bara frábært tilfinning, þá var líka ekki aftur snúið!!! hehe


Var alltaf ætlunin að verða Íslandsmeistari í Fitness?
Þetta er eitthvað sem ég hef lengi horft á og haft mikinn áhuga á! Fannst alveg frábært að fá þetta tækifæri á að prufa mig áfram í þessu sporti... er líka doltið öðruvísi...


Hver eru algengustu byrjendamistökin ?
fólk nú til dags er heppið að hafa góðan aðgang að keppendum, fólk er svo duglegt að hjálpa hvort öðru. Duglegt að miðla upplýsingum á milli. Fólk vill stundum fara of geyst í að fá sér að borða eftir mótin. Því það er svo hætt við því að þyngjast mjög hratt ef borðað er mikið fyrstu dagana eftir mótin...hehe


Finnur þú fyrir einhverjum fordómum vegna fitness?
Já og nei hef verið mjög heppin með það. Bý líka á Akureyri, lítill bær og Fitnessið er ekki mjög stórt og fólk er ekki mikið að pæla í þessu. En umfjöllun um mig er mun meiri erlendis. Þar koma reglulega greinar í frægum fitness-tímaritum og myndir.. en ekkert hér. Umræðan er ekki neikvæð en það eru alltaf einhverjir sem tala um íþróttina. Þá um ólöglegu efnin. En tel mig hafa verið mjög heppna. Ég má ekki vera stærri og er bara að halda mér við og þroska líkamann. Er líka

 það ung ennþá. Er oft á mótum úti talsvert mikið yngri en aðrir keppendur.


Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við fitnessið ?
að maður sé ekki að borða neitt!! Alveg ótrúlega algeng spurning. : bíddu ertu þá ekki að borða neitt núna??? Hehe ótrúlega fyndið, eins að þetta sé eins og vaxtarrækt. Sem er mikill misskilningur..!!

Hvað er næst á dagskrá ?
Var að koma heim úr myndatöku frá Danmörku . Fer svo á HM sem er 24.september. Nokkur önnur mót eru í umræðunni, meðal annars fer ég á norðurlandamóti í Svíþjóð líka.


Hver eru framtíðarplönin ?
mun halda áfram á þessari braut. Þó ég muni taka smá pásu frá keppni þá mun ég halda áfram að þjálfa og vinna við þetta.


Líkamspartur í uppáhaldi:
uuuuuu maginn þegar maður er alveg klár... en six-packið er samt alltaf sýnilegt... maður má ekki missa það hehe annars er bara heilt yfirJ er búin að vera að vinna mikið í mér og fínpússa hluti sem vantaði uppá. Fer held ég að verða ansi passleg.

Hvernig er æfingarvikan ?

 Dagur 1Dagur 2 Dagur 3 Dagur 4

Dagur 5 

 Dagur 6 Dagur 7
 Brjóst BakFætur Axlir Tví og þríhöfði FæturBrensla 

Svo er líka brennsla flesta daga plús öll kennsla

 

Hvað tekur þú langan tíma í undirbúning fyrir mót ?
Ég tek 10-12 vikur í undirbúninginn


Hver er algengasta spurningin sem þú færð ?
.....og bíddu ertu þá ekkert að borða núna


Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
sem er að gera svipaða hluti og maður sjálfur. Bara gaman að keppast aðeins á æfingum....

 

Ráð til nýliða í fitness ?
Bara kýla á þetta!!! Þetta er rosalega skemmtilegt og eins þegar maður er kominn lengra þá gefst manni mörg tækifæri til að ferðast og keppa. Eins ekki vera feimin með að spyrja reynda keppendur. Ég er alltaf tilbúin að svara ef fólk er með spurningar.

Hef heyrt um að þú hafir haldið ýmis námskeið, ertu með einhver námskeið á planinu? (fyrir til dæmis módel fitness sem var í fyrsta skiptið keppt í á Íslandi í apríl á þessu ári.)
Já hélt sviðsframkomunámskeið fyrir stelpurnar sem voru að keppa hér fyrir norðan. Tókum bara 6 vikur fyrir mót, hittumst 2x í viku og fórum í pósur og stöður á sviði... eins upplýsingar í sambandi við lit, föt og fleira. Það þéttir líka hópinn saman enduðum á smá dekri; farið í heitan pott og gufu og fleira

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 16. október 2008 01:43