Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 18. nóvember 2008 22:49

Hvað er að frétta, Kiddi Sam ?

Kristján Samúelsson - Kiddi Sam


Það er allt gott að frétta. Er að fara til Rússlands að keppa á heimsmeistaramótinu í Classic Bodybuilding. Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel, bara búin að halda mér síðan á Norðurlandamótinu. Vona samt að ég komi inn aðeins harðari núna.

Nú varstu áberandi á Norðurlandamótinu, hvert er leyndarmálið við árangurinn ?

það er víst ekki mikið leyndarmál, því miður. Númer eitt er að byrja nógu snemma að skera niður. Alltof margir sem byrja allt of seint og enda ekki nógu góðir eða hætta við eftir kannski 2 mánaða cutt sem er þá tími sem hefði betur verið varið í að byggja frekar upp. Svo er það bara mataræði, mataræði og mataræði. Það er SVO mikilvægt. Svo að sjálfsögðu blanda af vinnu, þolinmæði og aga. Það er svo ekki verra að hafa góða genatík, en henni breytir maður því miður ekki 

Hvernig er síðasta vikan fyrir mót hjá þér ?

Hún er erfið :) En vanalega æfi ég tvisvar á dag mánudag-miðvikudags. Er mjög hár í vatni mán-föstudag. Á föstudeginum cutta ég svo vatnið slatta en alls ekki niður í ekki neitt (kannski 3 lítrar). Svo lækka ég kolvetning mánudag-miðjan fimmtudag, byrja þá að hlaða og held áfram að hlaða fram á mót. Þetta er svona basic strukturinn. Svo er ég samt alltaf að prófa eitthvað nýtt, með kannski kolvetnin, vatn eða próteinin. Er t.d. að prófa nýtt nuna varðandi saltið...Vona að það skili sér :)

Eitthvað að lokum ? :)

Vantar styrktaraðila fyrir mótið, en það er kannski orðið aðeins of seint núna  Annars bráðvantar mig Dream Tan #2 keppnislit fyrir heimsmeistaramótið. Ef þið getið reddað mér endilega hafið samband við mig í síma 895-5882