Hvað er að frétta Rannveig Kramer ? Ég er að fara keppa í bodyfitness á Bikarmóti iFBB þann 28.nóvmeber n.k. :)
Hver er Rannveig Kramer ? Ég sigraði Icefitnessið 2005 þegar ég keppti í fyrsta skipti og var þá um 52kg á keppnisdag en verð nú eitthvað þyngri á sviði núna. Ég er 39 ára gömul og 168cm á hæð. Venjulega er ég á milli 57 til 58kg. Ég æfi í World Class Spönginni með tveimur vinkonum mínum þeim Írisi Reynisdóttur sem hefur reyndar keppt 2x í fitness og Dóru Ragnarsdóttur. Ég starfa sem ráðgjafi fyrirtækja í einu af útibúi Íslandsbanka. Hef áhuga á líkamsrækt, ferðalögum innanlands og utan síðan að rækta fjölskyldu og vini ásamt því að sinna freku heimilisdýri sem er hundur en heldur að hann sé eitthvað annað hehe Ástæðan fyrir því að ég ákvað að keppa í fyrra skiptið var sú að ein í Spönginni ákvað að drífa sig í keppni en það var margbúið að spyrja mig hvort ég ætlaði ekki að fara en ég sagði alltaf nei, en ákvað svo að láta tilleiðast og vera samferða þeirri sem ákvað að keppa og uppúr því varð líka hinn besti vinskapur og erum við góðar vinkonur í dag. Hef svo sem enga sérstaka fyrirmynd í fitness finnst þessar skvísur vera yfirhöfðu mjög flottar. En fékk fiðringinn eftir að hafa horft á fitnessmótið í Höllinni 2004.
Smellið á nánar til að sjá allt viðtalið
Ljósm. Einkasafn
Engin sérstök framtíðarplön varðandi keppnir framundan ætla að leyfa þessu móti að líða og svo bara sé ég til, ætlaði reyndar ekkert í þetta aftur en svo bara breytist margt og ég hafði ekkert betra að gera akkúrat núna. :) Uppáhaldslíkamspartur eru hendur. Ég tek núna um 12 vikur í niðurskurð en tók tæplega 6 vikur síðast. Lang erfiðast er að sleppa öllu namminu maður úff ég er nammifíkill dauðans þið finnið ekki verri nammifíkil... Ég er að nota Sci-MX fæðubótarefnin, umm þau eru æði finnst þau mjög bragðgóð. Nitro Fusion er alveg uppáhalds, svínvirkar og er bara jummí tropical bragðið er mjög gott hlakka alltaf til að drekka þetta hehe Æfingavikan núna er bak, brjóst, fætur(aftna), axlir, hendur fætur(framan) síðan brennsla helst núna 4x í viku jafnvel 5x mjög stíft enda styttist í mótið. Mæli samt ekki með svona æfingum dags daglega það gæti snúist upp í andhverfu sína árangurinn.  Ljósm. Einkasafn Algengasta spurningin sem ég fæ er: hvernig ferðu að því að halda þér alltaf í svona góðu formi, borðaðu þá aldrei nammi?? glætan hehe .Best finnst mér að æfa með fólki sem er glaðlegt hefur gaman af lífinu og brennandi áhuga á því sem það er að gera og ég er akkúrat að æfa með þeim.:) Algengasti misskilningurinn sem ég hef orðið vör við er að þá halda allir að maður sé í þessum vaxtaræktarpósum og kemur skrýtinn svipur á fólk hehe þangað til maður leiðréttir það. Algengustu mistökin tjaa er nú ekki viss um að ég geti svarað því, en kannski bara að ætla sér um of í fyrstu keppni þetta tekur allt tíma, byggja upp vöðva og annað, engar skyndilausnir takk....  88 reps í armbeygjum Ljósm.Icefitness.is
Til þess að ná árangri.... ja svo ég tali bara frá sjálfri mér, þá þarf maður náttúrlega að fókusera á það sem maður ætlar að gera setja sér markmið ekki of háleit en fylgja þeim eftir, passa mataræðið það er stærri hluti af þessu en fólk heldur og þá má ekki svelta sig. Borða reglulega passa það síðan er nauðsynlegt að sukka inn á milli ég er alveg á því. Ráð til nýliða, ja bara hafa trúa á sjálfum sér og ekki hika við að leita sér ráða hjá einkaþjálfurum og þeim sem hafa mikla reynslu af því að keppa. Síðan þarf maður bara að sortera úr og prófa sig áfram á sjálfum sér við erum öll svo misjöfn. :)  Ljósm.Icefitness.is
|