|
Fimmtudagur, 05. febrúar 2009 17:03 |
Hvað er spelt? Spelt ( triticum spelta ) er mjög forn korntegund sem tilheyrir elstu menningarjurtum mannkynsins. Spelt er víða í Evrópu einnig þekkt undir heitinu Dinkel. Það er eitt af þremur upprunalegustu korntegundum í heiminum. Hinar tvær tegundirnar eru Enkorn og Emmer, og má rekja þær aftur til ársins 6000 f.Kr. Spelt varð til úr þessum tveim korntegundum og er í raun ekki hveitikorn, heldur sérstök korntegund sem hefur ýmsa eiginleika fram yfir aðrar korntegundir í dag. En það er mikilvægt að speltið sé ræktað lífrænt og að ekki sé búið að víxlrækta það eða blanda við hveiti. Þá tapar það þessum mikilvægu eiginleikum.
Við ræktun á spelti er ekki hægt að fá eins mikla uppskeru eins og við ræktun á venjulegu hveiti, aðein um 60% og síðan fellur 35% burt sem er hýðið. Það þarf sérstakar vélar til að ná burtu ysta hýðinu. Hið þétta og harða hýði sem er svo erfitt að fjarlægja hefur þó sína kosti því það ver sjálft kornið fyrir allri ytri loftmengun og jafnvel geislavirkni ( þetta hefur verið staðfest með rannsóknum). Þetta gerir speltið að einni hreinustu og hollustu næringu nútímans. En það munaði litlu að speltið hyrfi af þessari jörð. Þökk sé Dr. Hertzka, austurrískum lækni sem tókst eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar að hafa upp á speltútsæði og fá bændur til að rækta það að nýju. Áhugi hans á spelti vaknaði við rannsóknir á skrifum heilagrar Hildegard frá Bingen (1098-1179). Hún var abbadís, merkt tónskáld, rithöfundur, læknir og sjáandi. Í einni bóka sinna segir hún: "spelt er besta kornið, það vermir, er kröftugt og ríkt af fitu og er mildara en annað korn. Það byggir upp heilbrigt hold og blóð, og gefur létt sinni og glaða lund. Hvernig sem spelt er matreitt er það alltaf létt í maga." Dr. Hertzka hefur um áratuga skeið ráðlagt þúsundum þeirra sem til hans hafa leitað að notað speltið sem grunnfæðu í mataræði sínu, sem mikilvægan þátt í meðferð ýmissa sjúkdóma.Spelt inniheldur flest næringarefni sem þarf til að viðhalda góðri heilsu. Það inniheldur amínósýrur, steinefni, snefilefni og vítamín. Í spelti má finna töluvert magn af fosfór, kalíum, kísil og magnesium. Einnig er meira af vítamíni B1 og B2 og níasíni en í hveitikorni. Í speltinu er næringin í öllu korninu bæði í hýðinu og kjarnanum. Auðvitað er heilkornamjöl hollara með mest af næringarefnum og trefjum, en sigtaða mjölið, þar sem það grófasta af hýðinu hefur verið sigtað frá inniheldur samt töluvert af næringarefnum sem vemjulegt hvítt hveiti gerir ekki. Margir halda að speltkornið sé glútenlaust því svo margir sem þola ekki glúten þola speltið. En það er töluvert magn af glúteni í speltinu en uppbygging þess er önnur og áhrifin því önnur í líkamanum. Þessar lýsingar á speltinu eiga einungis við þar sem um hreinræktað spelt er að ræða, en því miður eru á markaði spelttegundir sem búið er að hveitikrossa, það er kynbæta með blöndun við hveiti. Speltmjölið frá Aurion er malað á alveg sérstakan hátt til að ná sem best fram baksturseiginleikum þess. Það er malað á hæggenga steinkvörn til að mikilvæg næringarefni fari ekki forgörðum. Helstu eiginleikar speltkornsins Flestir sem þola ekki glúten þola það. Grein af heimasíðu Yggdrasils
 |
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 05. febrúar 2009 17:31 |