Spurt&Svarað Fitness
Þar sem ég fæ mikið af fyrirspurnum um sama efnið þá er hérna smá "Spurt og Svarað" :) Minni á að ýmsum spurningum er svarað í greinasafninu: Ýmis Fróðleikur - Fitness og Vaxtarrækt.
Verður þrautabraut á Íslandsmótinu 2010?
Nei það verður ekki þrautabraut á Íslandsmóti IFBB en ég bendi á að Icefitness er alltaf með þrautabraut.
Hvernig er með keppnisbann hjá IFBB
Þú mátt ganga í IFBB þegar þú vilt og keppa þar hvort sem þú hefur keppt í öðru sambandi eða ekki. En ef þú hefur keppt hjá IFBB og ferð síðan í annað samband og keppir þar þá ferð þú í 1 árs keppnisbann hjá IFBB. Þetta eru alþjólegarreglur.
Þannig að: ef þú keppir hjá IFBB og keppir svo hjá Icefitness þá máttu ekki keppa í 1 ár hjá IFBB neinstaðar í heiminum.
Hvað eiga pinnarnir á hælaskónum að vera háir ?
Það eru nú ekki neinar reglur um hæðina á pinnanum en það er miðað við að vera ekki meira en 5" hælum.
Minni einnig keppendur í Módel Fitness á að búið er að taka út lotuna með svarta bikiníinu