EFBB Bannar Bronzer-a sem ekki festast !
Í nýjasta fréttabréfi IFBB.com kemur fram að EFBB sambandið hafi nýlega bannað brúnkukremin sem ekki festast á (Líkt og Dream Tan Instant skin colour) þar sem brúnkukremið sé að klínast allstaðar og hótelherbergin séu öll
útötuð í þessu. IFBB segir að þetta sé skref í rétta átt því það þurfi að finna lausn á því hvernig sé hægt að fá réttan lit á húðina og með hvaða vörum/aðferðum það sé hægt.
 Ljósm. Pawel Kleineder Smellið á nánar til að lesa alla greinina
Margir framleiðendur bjóða upp á brúnkukrem sem veita
langvarandi tan, sérstaklega brúnkukrem líkt og Jana Tana "Ultra 1" or "Pro Tan Figure
and Fitness Kit" eða "Dream Tan Professional Self Tanning Spray". Þessar formúlur veita dökkan lit sem endist án þess að renna af þegar strokið er yfir hann. Undanfarin ár hafa Vaxtarræktarkeppendur verið að reyna fá dekkri og dekkri húðlit fyrir keppnir. Er það virkilega nauðsynlegt ? Fyrir neðan eru myndir þar sem kemur fram að of dökkur litur er ekki besta leiðin til að sýna vöðvaskil.
Fyrsta prófið var gert fyrir Evrópumót karla í
Maastricht þar sem brúnkukremið Jan Tana "Ultra 1" pakkinn var seldur fyrir 50 evrur. Keppendur verða að muna að það er nauðsynlegt að undirbúa húðina vel áður en brúnkukremið er sett á (þrífa, næra og skrúbba). Allir brúnkukremsframleiðendur mæla með því að byrja tvem til þrem dögum fyrir keppni að hugsa um húðina og byrja að bera kremið á til að fá sem flottasta litinn.
Ljósm. Pawel Kleineder
Prófið sem var gert í Classic Bodybuilding: Keppendurnir í miðjuni notuðu Jan Tana "Ultra 1" en gerðu það í skyndi án nokkurs undirbúnings fyrir húðina. Þrátt fyrir það lítur brúnkukremið mjög vel út og hjálpar til við að sýna vöðvaskil betur heldur en þeir sem notuðust við "bronzer"ana þar sem vöðvaskilin virðast renna saman og sjást ekki eins vel.
Ljósm. Pawel Kleineder
Keppandinn sem er annar frá vinstri er ljósari en hinir keppendurnir ern vöðvarnir hans sjást betur miðað við þá sem eru dekkri.
Ljósm. Pawel Kleineder
Hér sjást keppendur með mismunandi lit: alveg frá mjög dökkum(vinstra megin) yfir í ljósari lit (annar frá hægri). Svo virðist sem keppandinn í miðjunni sé með ákjósanlegasta litinn.
|