Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 23. september 2010 19:44

Hvað þýða allir þessir flokkar ??

Munur á Módel Fitness, Body Fitness osfrv

Grein eftir Katrínu Evu

Fitness, Body Fitness, Figure, Módel Fitness, Bikiní Módel, Bodybuilding Women, Classic Bodybuilding women...  Endalaus nöfn og flokkaskipting, er það nema von á að fólk ruglist !

Allavega verð ég skrítin á svip þegar það er talað um mig sem vaxtarræktarkonu, þó svo að ég sé það í raun og veru. Ég mæti jú í ræktina til að móta mig og styrkja og þarf þar að leiðandi að horfa gagnrýnisaugum á skrokkinn á mér, enda er ég að lyfta lóðum með þeim tilgangi að byggja upp líkamann rétt eins og orðið vaxtarrækt gefur til kynna. En fólkið vill allt stærra og ýktara og þar af leiðandi líta þær í vaxtarræktinni sem eru hvað fremstar í sportinu eins og hann Maggi minn í bikiníi áns gaursins að neðan og með sílíkonbrjóst... og það er bara AÐEINS of mikið fyrir minn skammt


Hér er fremsta vaxtarræktarkona heims í dag, Iris Kyle

 

Ef vaxtarrækt kvenna væri dæmd í dag rétt eins og hún var dæmd hér á árum áður þá myndi ég glöð þiggja þessa nafnbót vaxtarræktarkona, en þar fór fremst í flokki Cory Everson sem er ein helsta fyrirmynd mín hvað skrokkinn varðar.. hrein og bein dásemd.



Cory Everson


Þessi kona vann flokkinn vaxtarrækt kvenna á Ms. Olympia 6 ár í röð. En í dag eru breyttir tímar, það er komin endalaus flokkaskipting og ekki nema von á að fólk sem þekkir lítið til í þessu sporti ruglist. Ég ælta að útlista því sem ég veit um þetta og mínum skoðunum:

Flokkaskipting er einungis eftir því hvernig ég túlka þetta sem áhorfandi og keppandi og ég legg mat á það hversu langt konur eru komnar með skrokkinn á sér:

LEVEL 1 :

Módel Fitness : Þetta er sá flokkur sem er nú einn allra vinsælasti flokkurinn á mótum hér á landi, allar stelpur vilja keppa í módel fitness. Að mínu mati er þetta skemmtileg viðbót við sportið sem fær fleiri og fleiri til að fylgjast með. Hér er lögð áhersla á fallegar línur, fegurð, útgeislun og samræmi. Módel Fitness er séríslenskur flokkur og því engar alþjóðlegar reglur til um hann og að ég held engar reglur yfir höfuð ??? ... En til að vita hvernig stúlkur skulu undirbúa sig undir þennan flokk er sniðugt að horfa til sigurvegara síðasta móts sbr. frétt eftir Einar Guðmann formann IFBB á Íslandi ,,Báðar marka þær ákveðna stefnumarkandi línu sem dómarar hafa sett með þessum úrslitum í módelfitness". Þar höfum við það.

Það er enginn sambærilegur flokkur að ég held innan Evrópu en svipuð keppni ber heitið bikini contest og er orðið eitt það heitasta á stórmótunum í Bandaríkjunum.. eitthvað sem allar stelpur vilja keppa í ef marka má stemninguna baksviðs á Arnold Classic.

Keppendur í Bikiní Contest á Arnold Classic : Hér má sjá fullt af myndum frá keppninni

Lægri hæðaflokkurinn í módelfitness um páskana 2010. Tekið af fitness.is . Sjá myndasafn þeirra

 

LEVEL 2 :

Body Fitness : Þetta er sá flokkur sem flestir þekkja, en flest allir halda að heiti það fitness þá sé hraðaþraut innifalinn - en svo er ekki. Það sem inniheldur þrautirnar er einnig séríslenskt mót sem heitir Icefitness og keppi keppendur frá IFBB í því þá fara þeir í 2 ára keppnisbann. IceFitness er fitness mótið sem flestir sjá í sjónvarpinu, en það má þakka mótshöldurum fyrir það, enda duglegir að koma sínu áfram. Nýlega var gerð breyting á Icefitness-keppninni sem hljóðar svo að það verður enginn samanburður, eingöngu þrautir þannig að þetta verða ólíkar greinar á ný. Sambærilegur flokkur erlendis við Icefitness heitir Athletic Fitness og þar er skrokkurinn dæmdur 40% og árangur úr upphýfingum, dýfum og róðri 60 % að mig minnir. 

Body Fitness er mín keppnisgrein hér á landi og í Evrópu, hér eru reglur um þennan flokk af fitness.is:

1. Dómarinn metur fyrst heildrænt íþróttamannslegt útlit keppandans. Mat dómarans tekur tillit til alls líkamans. Matið sem byrjar á að fá heildræna mynd af líkamsbyggingunni þarf að fela í sér mat á hári, andlitsfegurð og íþróttamannslegum vexti vöðvabyggingarinnar ásamt hlutföllum og samræmi líkamsbyggingarinnar, ástandi húðar og áferðar hennar sem og framkomu keppandans sem á að einkennast af öryggi og glæsileika.

2. Líkamsbyggingin á að vera metin út frá heildaráferð vöðvabyggingarinnar sem fengin er fyrir tilstuðlan æfinga. Vöðvahóparnir eiga að hafa ávala og þétta áferð með örlítilli fitu. Líkaminn á hvorki að vera of vöðvamikill né of skorinn og á að vera laus við djúp vöðvaskil og/eða þverrákir í vöðvum. Líkamsbygging sem telst of vöðvamikil eða of skorin á að fá lægra mat.


3. Mat dómarans á að taka tillit til stinningar og áferðar húðarinnar. Áferð húðarinnar á að vera slétt og heilbrigð á að líta og án appelsínufitu. Andlit, hár og förðun á að undirstrika „heildrænt útlit“ keppandans.


4. Mat dómarans á keppandanum á að fela í sér alla framkomu keppandans frá því hann stígur á svið og þar til stigið er af sviði. Ávallt skal keppandinn metinn út frá áherslu á að hann sé „heilbrigður og hraustur“ með íþróttamannslegan vöxt sem birtist í aðlaðandi „heildarpakka“.


5. Dómarar eru minntir á að þetta er ekki vaxtarræktarkeppni. Keppendur þurfa að hafa mótaða vöðva, en ekki sömu stærð, þroska og þéttleika eins og sjá má í vaxtarræktarkeppnum. Keppandi sem býr yfir þeim eiginleikum á að fá lægra mat.


Kristín Krisjáns, Ranný kramer og Anna Bella flottar í overallinu um páskana 2010 - mynd af fitness.is

Reglurnar fyrir Body Fitness eru þær sömu um alla Evrópu. Þetta er eingöngu skrokkashow... þe. hver hefur flottasta skrokkinn. En vinnan við að byggja upp svona skrokk er rosaleg og því gaman að geta staðið stolt á sviðinu vitandi það hve mikla vinnu maður lagði í þetta. Það hve fáir "nenna" þessu gerir þetta enn skemmtilegra :)

Í Bandaríkjunum er ekki til neitt sem heitir Body Fitness, en sambærileg grein heitir Figure Fitness og ég keppti í áhugamannaflokknum þar á Arnold Classic. Þær stelpur í Evrópu sem eru keppniskonur í BodyFitness keppa í Figure Fitness í BNA.  Nú lítur dómnefndin meir til Bandaríkjanna sem fyrirmynd að dómgæslu því þróunin á Body fitness kvenna var farin að slaga í vaxtarrækt.

Þær sem eru og hafa verið fremstar í Figure Fitness í heiminum í dag eru:

Jenny Lynn ein af þeim sem hefur unnið hvað oftast

Gina Aliotti sem vann allt árið 2008

´Toppsætin í vor í Figure.. farið fram á "mýkra lúkk" = fallegri skrokkar :)

Nicole Wilkins Lee, sigurvegari síðustu tveggja stórmóta

Og síðust en ekki síst ! Monica Brant, en hún er sú frægasta í bransanum og sú sem er nákvæmlega ALLTAF í formi .. hún er að fara að koma á klakann í haust á Expóið og verður með námskeið fyrir áhugasamar stúlkur.

 

Fitness Kvenna : Er mjög áhorfendavæn og skemmtileg keppnisgrein en það er ekki lengur keppt í henni hér á landi Hún samanstendur af rútínu við tónlist og svo samanburði. Í Fitnessinu eru keppendur töluvert harðari og með lægra fituhlutfall en Figure og Body Fitness keppendur. Þannig að þetta er mjög krefjandi keppi og meiðslahætta mikil. Algengt er að fimleikastúlkur og dansarar fari í þennan flokk v. rútínunnar.

Tvær fremstu konurnar í fitnessi kvenna í dag. Jenny Hendershott og Adela Garcia

LEVEL 3

Classic Bodybulding kvenna : Er ný grein innan IFBB, það var fyrst byrjað að keppa í henni í fyrra. Þessi flokkur var búin til sem millistig milli Body Fitness og Bodybuilding. Það er þyngdaflokkaskipt og konur verða að ná undir vissa þyngd miðað við hæð. Við íslendingar eignuðums Norðurlandameistara í greininni síðasta haust án þess að nokkur fjölmiðill hafði fyrir því að skrifa um það ! .. En að mínu mati mættu fleiri íslenskir keppendur taka hana til greina og fljúga yfir í þennan flokk eða minnka sig að nýju.

 

Sólrún Stefánsdóttir Norðurlandameistari í Classic Bodybuilding Women 2010

LEVEL 4

Bodybulding kvenna : Þær eru ansi fáar í dag í þessir keppnisgrein bæði hér á landi sem og erlendis, með tilkomu alla hinna flokkanna. En sú sem gerði garðinn hvað frægastan þegar ég var að alast upp var Magga Massi, það muna flestir eftir henni, einnig má nefna Nínu Óskarsdóttur. Í dag er það svo sviðsljónið Hrönn Sigurðardóttir sem hefur náð að peppa upp stemmninguna að nýju fyrir vaxtarræktinni með frábærri sviðframkomu og svo eigum við eitt nýstirni sem er ansi öflug en hún heitir Hilda Elisabeth Guttormsdóttir.

En erlendis gilda sömu reglur og hér heima. Það er keppt í þyngdarflokknum og það er farið fram á vöðvamassa, gríðarlegan skurð og samræmi milli líkamsparta.

 

Magga Massi á árum áður, þá var einungis keppt í vaxxtarrækt

"Þær" geta orðið ansi HRIKALEGAR !

 

Jæja vonandi er ég búin að ná að gefa ykkur einhverja innsýn inní þetta sport, kannski hef ég bara ruglað ykkur enn meira í ríminu.. hehehe :) .. ef þið hafið einhverja sniðuga viðbót við þetta eða athugasemdir mailið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. þá á mig.

Eigið frábæran dag :)

Kveðja
Katrín Eva