|
Tekið af heimasíðu IFBB á Íslandi fitness.is Lota 1. Módel lota Lota 2: Blandað bikini Lota 3: Sundbolur
Í megindráttum eru áherslur dómara í þessari nýju keppnisgrein þær að mun minni áhersla er lögð á vöðvamassa og skurði og horft er til fegurðar. Byrjað var að keppa í módelfitness hérlendis 2006, en 2011 varð grein sem nefnd er á enskunni Bikini models viðurkennd keppnisgrein innan Alþjóðasambands líkamsræktarmanna. Einungis er keppt í kvennaflokki í þessari keppnisgrein. Leitað er að keppendum sem bera það með sér að vöxturinn sé tilkominn vegna íþróttaiðkunar, limaburður fallegur og sýnt er fram á hæfileika til fyrirsætustarfa. Keppendur eiga að sýna fram á fallega kvenlega líkamsbyggingu, hóflega stæltan sem og fallega tónaðan og samræmdan vöxt. Húðlitur sé hóflega brúnn, ekki of dökkur. Sigurvegarinn sem leitað er að verður væntanlega sá keppandi sem býr yfir öllum þessum kostum og ætti í kjölfarið að eiga möguleika á fyrirsætustörfum sem tengjast líkamsræktargeiranum. Lota 1. Módellota
Keppendur klæðast íþróttafatnaði að eigin vali. Fatnaðurinn þarf að uppfylla þau skilyrði að hylja allan líkamann og samanstanda af síðbuxum, síðerma treyjum og íþróttaskóm. Klæðast má toppi innan undir síðerma treyju og er keppanda heimilt að fara úr síðerma treyjunni þegar á sviðið er komið í fyrstu innkomu ef hann óskar þess. Fatnaðurinn má vera merktur með merki framleiðanda fatnaðarins eða æfingastöð, ekki öðrum. Yfirdómari skoðar og samþykkir fatnað við innritun og skráningu keppenda fyrir keppnina. Þessi lota er dæmd út frá framkomu og útliti með tilliti til framsetningar og hreyfingar keppandans sem fyrirsæta.
Í þessari fyrstu innkomu eru keppendur kynntir einn í einu inn á sviðið og ganga fyrst inn að miðju, taka hægri beygju út að enda sviðs, ganga síðan þvert yfir allt sviðið að hinum endanum, aftur að miðju og þaðan út af sviðinu aftur. Þegar allir hafa verið kynntir þannig inn á sviðið koma þeir allir inn á sviðið í einu í annarri innkomu. Taka sér stöðu eftir númeraröð aftarlega á sviðinu.
Að því loknu yfirgefa allir sviðið eftir ábendingum dómara.  Fram pósan
Lota 2: Blandað bikini
Keppendur koma allir í einu fram á sviðið, í bikini í lit að eigin vali og hælaháum skóm í lit að eigin vali. Samanburður fer fram með fram- og aftursnúningum þar sem keppandi má hafa aðra hönd eða báðar á mjöðm og ekki gilda sérstakar reglur um fótastöðu eins og í fitnesskeppni kvenna. Ekki eru teknir fjórðungssnúningar. Sömu reglur gilda um fatnað í þessari lotu og í fitnesskeppni kvenna. Ef haldin er forkeppni í módelfitness, er þessi lota dæmd þar, en hinar tvær í úrslitum.
 Aftari pósa
Lota 3: Sundbolur
Keppendur koma allir í einu fram á sviðið, í sundbol í lit að eigin vali og hælaháum skóm í lit að eigin vali. Leyfilegt er að bera skartgripi. Reglur IFBB í fitness kvenna (bodyfitness) gilda um ofangreindar lotur nema í þeim tilfellum þegar annað er tekið fram. Dómarar leggja eins og áður sagði áherslu á mjög hóflegan vöðvamassa og skurði en leitað að fallegum kvenlegum línum. Áhersla er lögð á fallegar, kvenlegar línur. Um leið og vöðvaskil fara að verða áberandi verða þau ekki keppandanum til framdráttar í módelfitness.
Minni líka á grein sem fjallar um helstu breytingar sem gerðar hafa verið á reglum Alþjóðasambandsins nýlega.
Einar Guðmann
|