Ráðleggingar um förðun fyrir mót Setjið eyeliner á auglokin áður en gervihárin eru límd á – það auðveldar ásetningu háranna.
Ekki prufa nýjar húðvörur þegar 2 vikur eru í mót. Ef þú ert með viðkvæma húð nær húðin ekki að jafna sig fyrir mótið.
Málið ykkur að minnsta kosti 2 tímum fyrir sýningu. Þrífið málinguna af strax eftir sýningu.
Verið búin að prufa meikið með brúnkukreminu. Oftast þarf að nota dekkra meik en venjulega.
Berið ekki nema kannski eina umferð af brúnkukremi á andlitið. Notið frekar dekkra meik en þið notið venjulega svo andlitið verði ekki flekkótt.
Hafið hárið einfalt, ekki hafa sundfötin í eins lit og hárið.
Augnskuggi – Veldu lit sem fer vel við húðlitinn þinn. Hvað sem þú gerir EKKI hafa augnskuggan í sama lit og sundfötin.
Til að fá fylltra útlit á varirnar notið ljósari gloss á miðjar varirnar. Haldið ykkur frá rauðum varalit, þetta er ekki góður litur upp á sviði.
Litið og plokkið augnabrúnirnar að minnsta kosti 2 dögum fyrir keppni.
Að halda að minna sé meira (less is more) er rangt þegar Fitness á í hlut. Upp á sviði sést venjuleg förðun ekki vel og því verður að ýkja allt upp.
|