Post-competition Blues
Eftir keppnis þunglyndi
Þá fer að styttast í Fitness & Vaxtarræktarmót en nú vil ég biðja ykkur um að hugsa nú svona stuttu fyrir keppni: Hvað ætla ég að gera eftir keppnina? Ætla ég að festast í stanslausu áti og fylla ísskápinn af öllu því óholla sem mig hefur langað í á köttímabilinu eða ætla ég að reyna nýta agann og skipulagninguna sem ég hef tileinkað mér til að lifa heilbrigðu lífi og líða vel ?
Maginn hefur breyst í stórt tómarúm sem ÖSKRAR eftir kolvetnum. "Afhverju ekki, hvað er annað að gera eftir keppnina". "Éta, éta éta er það eina
sem þú getur hugsað um" segir Chelsea Nypiukm, sálfræðingur og fitness keppandi. "Strax eftir keppni fór ég í fjórar mismunandi búðir að kaupa mat því ég vildi ekki að afgreiðsludaman vissi hvað ég væri að kaupa fyrir mikið. Ég vildi ekki að fólkið sem ég bjó með vissi hvað ég væri að borða mikið svo ég faldi matinn".
Hvað er að gerast fyrir mig ?
Margir keppendur missa sig alveg þegar keppni líkur og hafa enga stjórn á því hvað þeir láta ofan í sig. Fólk ákveður að taka smá hlé frá ræktinni og hvíla... en þessi hvíld endist oft lengur en menn ætla sér og keppendur reyna að komast yfir sem mestan mat, áfengi, gos og jafnvel föt sem þeir hafa neitað sér um á sem styðstum tíma.
Fitness þjálfarinn Cathy Savage segir alskyns vandamál koma upp hjá keppendum eftir keppnir. Fólk reynir að bæta fyrir allar skemmtanirnar sem það missti af og drekkur í óhófi, fær kaupæði og hugsunina ég-má-borða-það-sem-ég-vil.
Rannsókn tímaritsins Journal of Athletic training sýndi að misnotkun áfengis væri algengari meðal kvenna sem stunda íþróttir en þeirra sem stunda ekki íþróttir.
POST-COMPETITION BLUES
"Þetta er vandamál sem fólk vill ekki tala um, en öllum líður eins" segir Fitness þjálfarinn Cathy Savage.
Í sumum íþróttagreinum, líkt og ballett, fimleikum og skautum, þarf að halda sér í ákveðinni þyngd til að auka hæfni og árangur. Rannsónir hafa sýnt að þegar keppandi þarf að vera grannur (eða með lága fituprósentu) eigi hann í meiri hættu með að þróa með sér átröskun eða aðra slíka sjúkdóma, án þess að átta sig á því.
Það er margt sem getur haft áhrif á getu keppanda t.d. persónuleikinn (sjálfsálit, fullkomnunarárátta og þess háttar)
Það sem byrjaði sem lausn til að losna við fitu breytist í vandamál. Að fylgjast með því sem þú setur ofan í þig breytist í endalausan kaloríureikning. Þú ert ekki lengur að æfa stíft heldur farinn að ofþjálfa og þjáist af ofþreytu. Í annari könnun sem var gerð kom í ljós að af tæpum 700 karl-og kvennkyns íþróttafólki var 1/3 mjög upptekinn ef ekki heltekinn af því sem þau settu ofan í sig og 12% óttuðust að missa stjórn á því sem þau settu ofan í sig.
Þeir sem hafa keppt kannast kannski við það að hugsa “Get ég gengið í gegnum þetta aftur?” Tilfinningarnar ýmist lengst niðri eða efst uppi, maður ræður ekkert við skapið, einn daginn er alltaf frábært en hinn daginn hugsarðu "Afhverju í andsk*** er ég að leggja þetta allt á mig? Er þetta þess virði? ég er hætt við!" Þú eyðir allri þinni orku í að æfa, borða og þrælskipuleggja daginn og er þetta sérstaklega erfitt með fullu námi eða fyrir mæður sem eru með heimili. Sjálf skil ég ekki hvernig mæður fara að þessu þar sem ég hef alltaf átt í fullu fangi með sjálfa mig þegar ég hef verið að undirbúa mig fyrir keppni með námi og spinningkennslunni.
Svo þegar mótið er búið þá er ísskápurinn tómur, húsið skítugt og veskið tómt. – var þetta þess virði ?
AUÐVITAÐ!!! það sem fitnessið hefur kennt mér er
 Módel Fitness Íslandsmótið 2008 - vodvafikn.net
|
- Sjálfsagi
- að skipuleggja mig
- sjá hversu ótrúlega miklu máli rétt mataræði skiptir fyrir líkamann,
- réttu tökin í ræktinni
- Hvernig best sé að brenna og hversu lengi í einu
- Hvað á að borða og hvað á að forðast
- og svo margt annað
Það sem þarf að gera til að geta lifað þessum lífstíl er að hugsa alltaf hálft ár fram í tímann. Þegar það er mánuður í mót þá áttu ekki að fara drífa þig að kaupa allt, sundfötin, brúnkukremin, skóna og allt sem þessu fylgir. Þú átt að vera búin að deila kostnaðinum niður á nokkra mánuði svo að þú eigir nú fyrir mat á endasprettinum.
Módel Fitness Íslandsmótið 2008 - vodvafikn.net
|
Þeir sem eru að byrja í fyrsta skiptið ættu að byrja hægt og gefa sér 6-7 mánuði í að byrja. Ná upp einhverjum vöðvamassa, læra inn á matarræðið – hvað virkar og virkar ekki fyrir mig – og læra að borða 6 sinnum á dag, t.d fyrir mig tekur alltaf 2-3 vikur fyrir mig bara að koma mér inn í matarprógrammið. Æfa þolið, pósur og annað því annars eru svo miklar líkur á því að maður gefist upp því líkaminn er ekki vanur þessu.
Ástæða þess að ég ákvað að taka þetta fyrir er sú að ég sá grein í Oxygen sem var að fjalla um Post-competition blues (eftir-keppnisþunglyndi) og hef ég í tvö skipti af þremur sem ég hef keppt lent í að líða svona. Þetta eina skipti sem ég lenti ekki í þessu var þegar ég tognaði illa, var á hækjum og var alveg brjáluð eftir keppnina og mætti í ræktina 2 dögum eftir keppni, á hækjunum og hélt algjörlega matarræðinu.
Ég að missa mig á Greifanum.. jebb var ein með alla þessa diska
|
Því bið ég ykkur um að hugsa nú svona stuttu eftir keppni: Hvað ætla ég að gera eftir keppnina? Ætla ég að festast í stanslausu áti og fylla ísskápinn af öllu því óholla sem mig hefur langað í á köttímabilinu eða ætla ég að reyna nýta agann og skipulagninguna sem ég hef tileinkað mér til að lifa heilbrigðu lífi og líða vel ?
Byrjaðu rólega í ruglmatnum, ekki éta yfir þig af rúsínum áður en þú stígur á svið, vertu búin að ákveða hvað þú mátt borða á veitingarstaðnum um kvöldið svo þú pantir ekki of mikið, ef þú vilt endilega drekka gerðu það þá í hófi, líkaminn þolir ekki mikið. Það er hægt að skemmta sér án þess að vera ofurölvi. BORÐAÐU MORGUNMAT næsta dag, helst eitthvað með höfrum en ekki páskaeggi.
Ég vil ekki að þið sem eruð að byrja brennið ykkur á þessu eins og ég og reynið því að setja niður fyrir keppnina matarprógram því það ER erfitt að hemja sig. Haldið allavega 5 máltíðum inni lítið í einu, þvi það verður erfitt að horfa á sjálfa sig byrja að vatnast og þyngjast eftir keppnina og flotta skurðinn hverfa hægt. Hugsaðu málið. Byrjaðu rólega og hafðu bara svindlmáltið á tveggja daga fresti. Já máltíð ekki heilan dag ;)
+35 ára flokkur kvenna Íslandsmótið 2008 - vodvafikn.net
|
Gangi ykkur vel :)
Kveðja
Sunna Hlín