Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Keppnisfatnaður fyrir mót

Inga, konan hans Guðmundar Bragasonar segir okkur frá Sefa sem sér um að sauma keppnisfatnað



Mitt samstarf við Sefa(fyrirtæki sem saumar keppnisfatnað) byrjaði þannig að ég þurfti að fá bikiní og bol fyrir Íslandsmótið og Grand Prix Osló í vor.  Ég var búin að þvælast fram og til baka á bandarísku netsíðunum og reyna að ákveða mig. Mér fannst rosalega erfitt að ákveða lit og munstur og þar að auki fannst mér svo bjánalegt að senda inn mál af mér 8 vikum fyrir mót, því það verður maður að gera til að fatnaðurinn berist nógu tímanlega. Svo var ég næstum búin að guggna á þessu öllu saman, hugsaði með mér ,,en ef þetta passar svo ekki" eða ,,liturinn er ómögulegur", þá væri ég búin að eyða fullt af peningum í eitthvað sem ég gæti svo aldrei notað.

 
Sem betur fer þá ákvað ég að hringja í Sefa í Noregi þar sem ég bý. Hafði að sjálfsögðu séð netsíðuna þeirra og vinkona mín hafði verslað hjá þeim. Ég var náttúrulega alltaf að hugsa um að komast sem ódýrast út úr þessu og hélt að það væri svo miklu dýrara að kaupa fatnaðinn í Noregi. En komst að því að ég sparaði ekki mikið á því að panta frá USA.
 


Ég ákvað því að keyra til Sarpsborg sem er eins og hálftíma keyrsla frá Drammen þar sem ég bý. Þar tók Toril Kjøran,hönnuður og eigandi Sefa á móti mér. Toril hefur sjálf verið keppandi í vaxtarrækt hér fyrr á árum og hefur rekið saumastofu í 15 ár. Sefa er nánast einráð á markaðinum í Noregi, en selur einnig mjög mikið um alla Skandinavíu.

 
Hjá Toril fékk ég góðan tíma til að kíkja í möppurnar hennar (þar sá ég m.a. mynd af Heiðrúnu) og skoða öll efnin sem hún hafði upp á að bjóða, svo völdum við í sameiningu lit, munstur og snið. Hún er alveg rosalega nákvæm og sýndi mér hvernig ég átti að klæða mig í sundbolinn og bikiníið svo allt myndi nú sitja eins og það á að vera.  Ekkert rugl með klístur eða brjóstapúða. Mér leið alveg eins og prinsessu þarna. Eftir tvo tíma var búið að sauma á mig svart og litað bikini og sundbol, sem passaði perfekt(eins og við segjum í Noregi ). Þremur dögum seinna fékk ég svo sendinguna í pósti. Við höfðum orðið sammála um að byrja með nokkuð einfalt munstur, til að ég gæti svo jafnvel breytt því og bætt við steinum, fyrir næsta/næstu mót. Svo nú á ég sérsaumaðan fatnað, sem ég kem líklega til með að láta bæta við steinum á fyrir næsta ár, alveg eins og nýtt :)
 
Að sjálfsögðu er þetta þó nokkuð mikil fjárfesting í fyrsta skiptið, þess vegna er svo rosalega mikilvægt að fatnaðurinn sé sérsaumaður. Það er ótrúlegt hvað t.d. sundbolur sem er of lokaður að framan eða opin getur eyðilagt fyrir líkamsgerðinni hjá okkur. Svo ekki sé talað um hversu hár bolurinn skal vera upp í mittið osfrv. Þar koma líka reglurnar inn í, hvað er eiginlega leyfilegt. Toril er með allar reglur á hreinu um hvað er löglegt og hvað ekki og hversu langt maður getur teygt lopann. Það er ekki gaman að vera rekin út af sviðinu eða jafnvel ekki komast á sviðið vegna þess að bolurinn er ólöglegur.
 


Ég og Toril héldum sambandi eftir mótin og ég hafði orð á því við hana hversu frábært væri ef svona þjónusta væri á Íslandi, þar sem eru þrjár keppnir eru haldnar á ári og margar stelpur að keppa bæði í Body fitness og Módel fitness. Toril hafði svo samband við mig núna í haust og spurði mig hvort ég væri til í að hjálpa henni að kanna áhugann á að fá þessa þjónustu til Íslands, þar sem hún hafði fengið nokkrar fyrirspurnir frá Íslandi. Svo núna vonumst við til þess að áhuginn sé nægur svo að við getum komið um næstu helgi og sýnt hvað við höfum upp á að bjóða. Við komum til með að vera með sýnishorn af efnunum, myndir af fatnaðinum og að sjálfsögðu prufur.
 
Planið er að vera á Íslandi í 3 daga, frá 31.okt til og með 2.nóv. Við verðum líklegast staðsett í Smárahverfinu. Þeir sem hafa áhuga og vilja panta fatnað, bæði fyrir dömur og herra, verða að panta tíma hjá mér annað hvort með í gegnum tölvupóst: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma +47 90697018. Að sjálfsögðu er svona pöntun bindandi, allir verða að borga inn á pöntunina við mátunina.
 
Ástæðan fyrir því að við völdum að koma núna er að nú fer að styttast í Bikarmótið og allir að detta í form :) þá munu mælingarnar standast nokkuð vel og pöntunin mun berast ca. 15.nóv eða viku fyrir mótið, jafnvel fyrr, fer eftir því hversu mikið munstur er valið. Það tekur Toril hálfan til einn dag að steinaleggja einn sundbol.
 


Verðið er 1.500
norskar krónur fyrir sundbol og sama fyrir bikní. Þá erum við að tala um án steina. Hver og ein getur svo valið hversu mikið af steinum/munstri, hún velur. Verðið á herra skýlunum er 400 norskar krónur.
 
Mæli samt með að allir kíki inn á sefa.no til að sjá alla möguleikana sem eru f. hendi.
 
Vona bara að sem flestir notfæri sér þetta tækifæri núna. Held að það yrði mikil lyftistöng fyrir sportið á Íslandi að fá svona virkt og hágæða fyrirtæki inn. Hér erum við jafnvel að tala um að svona fyrirtæki styrki heilt mót! Það væri sko ekki leiðinlegt :)
 
Svo núna er bara að setja í gang og  fá inn styrktaraðila til að hjálpa ykkur til að líta sem best út á sviðinu, fötin skapa jú svolítið af manninum.
 
Gangi ykkur vel í undirbúninginum fyrir komandi mót.

Kveðja, Inga