Rúmar 10 vikur í Íslandsmót IFBB
 -90kg flokkur Íslandsmótið 2003 |
Nú styttist í Íslandsmót IFBB í fitness og vaxtarrækt sem haldið verður 11.apríl sem er eftir 9 vikur og 5 dag svona til að vera nákvæm !!! Þannig að þeir sem ekki eru búnir að taka ákvörðun um að keppa þurfa að fara gera upp hug sinn ekki seinna en í dag ;) Það hafa verið að rigna inn fyrirspurnir frá stelpum sem vantar bikiní og sundboli fyrir mótið og auðvitað minnsta mál að setja það hérna inn á síðuna. Sendið mér bara póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða smellið á Hafa samband takkan hér hægra meginn á síðunni. Ég veit að það eru til alveg ótrúlega mikið af fitness sundfötum sem liggja bara ofan í skúffu einhverstaðar, þeir sem eiga eitthvað endilega hafið samband við stelpurnar sem vantar sundföt og leigið, eða seljið þeim sundfötin ykkar :) Svo getiði líka auglýst frítt hérna inn á síðunni.
Svo þarf líka að fara æfa skyldurstöðurnar eða pósurnar því það er ekkert jafn leiðinlegt og að vera með ljótar eða vitlausar pósur upp á sviði. Strákarnir þurfa svo að fara setja saman og æfa dansrútínu og hér er smá hint: hafið nú hressar dansrútínur, var orðið frekar þreytandi á Norðurlandamótinu þar sem næstum allir keppendurnir voru með róleg lög ;) Í fitness karla eða Classic Bodybuilding, eins og það heitir núna, þarf að framkvæma upphífingar og dýfur.
Þrautabrautin er svo alltaf á Íslandsmótinu þannig að það er ekki nóg að vera dauðköttaður heldur þarf maður að hafa úthald í vöðvunum líka.
Ef þú ert í einhverjum vafa um hvort að þú sért unglingur, öldungur eða í venjulegum flokk þá eru reglurnar um það hér
Þar undirbúningurinn fyrir svona mót eru ansi kostnaðarsöm þá er ágætt að reyna dreifa kostnaðinum. Hérna er svo smá tossalisti og linkar á nánari upplýsingar um sölusíður eða reglur.
Brúnkukrem: Protan / Dreamtan
Fitness/Módel Fitness:
Sundbolur litur: frjálst val
Bikiní litur: 1x svart, 1x frjálst val
Hælaskór: 1x svartir lokaðir, 1x glærir
Hvað á að vera í töskunni á mótsdag ?
Ráðleggingar um förðun á mótsdag
Vonandi hjálpar þetta einhverjum sem eru í vafa :) Ef að einhverjar spurningar vakna þá bara endilega að senda á mig línu og ég finn svarið ;)