Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 06. júlí 2010 12:09

Djöfull ertu flottur !

Sögur af yfirvigtarmönnum á fegrunarstöðum

 
Stefán Sölvi, Heiðar G, Páll, Benedikt Magnússon, Ólafur Valur, Valdi Bolla
Ljósm. Sunna Hlín

Já alltaf er eitthvað nýtt að gerast hérna á Íslandi, hlunkarnir eru mættir í fegrunarstöðina Word Class. Yfirleitt hafa þeir nú haldið sig í sérútbúnum gymmum fyrir þá en nú hefur orðið breyting á !

Smellið á nánar til að lesa alla söguna

Þessi saga átti sér stað þegar Benedikt var nýbúin að taka léttar bicep fegrunaræfingar í World Class og ákvað að nýta sturtuaðstöðuna.

Það fylgdi nú ekki sögunni hvað gerðist í sturtunni en þegar hann búinn í sturtu klæddi hann sig í nærbuxur og trítlaði að vaskinum og ætlaði að fylla á brúsann sinn. Í World Class eru auðvitað allar nýjustu tæknigræjur og við hliðin á vaskinum er græja sem vindir sundföt fyrir mann. Við græjuna stendur gaur að vinda skýluna sína sem lítur á Benna og segir "

"Vá maður, djöfull ertu flottur, ÞÚ ERT HRIKALEGUR !

 Benedikt lítur niður og sér að gaurinn er alsber og segir "Rólegur gaur ekki vera segja svona alsber !" hann ákvað svo að bíða með að hrista brúsann sinn og trítlaði í burtu.