Fógetamótið  Ólafur Sigurgeirsson 22. nóv 48 - 27.apr 06 |
Fógetamótið er bekkpressumót án útbúnaðar (kjötmót) sem haldið er til minningar um Ólaf Sigurgeirsson kraftlyftingamann og stofnanda Kraftlyftingasambands Íslands. Keppendur þurfa að vera í löglegum keppnisgalla (singlet, overall). Enginn útbúnaður er leyfður nema belti. Mótið var haldið í fyrsta skipti þann 30. september 2006 í húsnæði Bifreiða og landbúnaðarvéla. Úrslit mótsins má finna hér.
Vinum og velunnurum sem ekki vilja keppa er boðið að taka eina lyftu á undan keppni til að heiðra minningu Ólafs Afhverju Fógetinn ? Svarið má finna á heimasíðu kraftheima hér :)
Mótaskrá fyrsta mótsins 2006 Smellið á til að lesa
"Það fór ekki á milli mála þegar Ólafur kom í hús og mönnum varð starsýnt á heljarmennið. Hugur hans hneigðist til íþrótta og aflrauna frá unga aldri. Fyrst henti hann mönnum á loft í glímu. Árið 1969 varð Ólafur Íslandsmeistari í 3. þyngdarflokki í glímu og með KR-ingum í sveitaglímu á árunum þar á eftir. Hinn kraftalegi glímustíll var bending um stefnuna inn í heim aflrauna. Hann var sterkur og þegar hann var byrjaður að lyfta fyrir alvöru varð hann það sem félagarnir nefndu sterka manninn. Hann var marfaldur Íslandsmeistari í lyftingum og kraftlyftingum, setti fjölda Íslandsmeta og vann til verðlauna á Norðurlandameistaramótum. Bekkpressan var hans aðalgrein. Hann var keppnismaður í besta lagi og gaf ekki eftir fyrr en í fulla hnefa og það var talsvert!
Ólafur var leiðtogi að upplagi. Félagar hans í puði og svita vissu, að hægt væri að treysta Óla. Hann var kallaður til ábyrgðar, stýrði mörgu af því sem gert var á fyrstu árum og áratugum í félags- og keppnis-málum lyftingamanna og var manna hressastur og líflegastur við að magna stemmingu á mótum. Hann varð brautryðjandi, stjórnaði þingum, aflaði hreyfingunni fé til framkvæmda og keppna, var fararstjóri í keppnisferðum erlendis, ráðgjafi ungu mannanna, hollvinur hinna eldri, dæmdi á mótum heima og erlendis, var tengill við erlend systur- eða eigum við frekar að segja bróður-samtök, alls staðar vel kynntur. Ólafur var formaður Lyftingasambands Íslands frá 1977-80 og formaður Kraftlyftingasambands Íslands frá 1984-86."
Hluti úr Minningarorðum sem flutt voru við útför Ólafs Sigurgeirssonar í Hallgrímskirkju, 5. maí, 2006
|