Mr.Olympia keppnin var búin til af Joe Weider. Larry Scott hvatti Weider til að halda keppnina en Scott hafði þá unnið Mr.America og Mr.Universe voru því ekki fleiri titlar sem hann gat unnið.
Fyrsta Mr.Olympia keppnin var haldin 18.september 1965 í Brooklyn Academy of Music í New York þar sem Larry Scott var fyrstur til að vinna titilinn Mr.Olympia. Hann vann einnig árið 1966 en ári seinna hætti hann að keppa.
Sergio Oliva | Sergio Oliva vann auðveldlega þriðja og fjórða titilinn á árunum 1967 og 1968, en ekki svo auðveldlega 1969 þegar fyrsti alvöru keppninautur hans steig á svið og erum við auðvitað að tala um meistarann Arnold Schwarzenegger. Sergio vann samt titilinn það árið(1969). Arnold Schwarzenegger var þriðji maðurinn til að verða Mr.Olympia og hélt þeim titli frá 1970 – 1975. Þótt að það hafði verið afar tæpt árið 1972 þar sem hann vann Sergio Oliva með 4 atkvæðum gegn 3.
 Franco Columbo
|
Þegar Arnold vann keppnina 1975 var hann að taka upp heimildarmyndina Pumping Iron. Í kjölfari sigursins ákvað hann að hætta á toppnum og tókst því Franco Columbu að vinna titilinn árið 1976 eftir að hafa keppt 5 sinnum áður. Hann ákvað einnig að hætta keppa eftir sigurinn.
Frank Zane |
Næstu þrjú árin vann Frank Zane (1977 – 1979) Árið 1980 ákvað Arnold Schwarzenegger að keppa aftur og vann sinn sjöunda titil. Franco Columbu ákvað einnig að koma aftur til keppni og vann titilinn 1981. 78 jj Chris Dickerson vann titilinn loksins árið 1982 eftir að hafa lent í öðru sæti tvö ár í röð og tilkynnti hann á sviðinu að nú væri hann hættur að keppa.
Samir Bannout vann svo titilinn árið 1983
 Lee Hanley
|
Árið 1984 var vinningsupphæðin 100.000 dollarar og vann þá Lee Haney titilinn Mr.Olympia og næstu átta árin hélt hann titlinum(1984-1991).  Dorian Yates
|
Nýr Mr.Olympia var krýndur árið 1992, Dorian Yates. Hann vann næstu sex árin (1992-1997) og hætti síðan að keppa. Árið 1998, var vinningsupphæðin komin upp í 285.000 dollara. Þar vann Ronnie Colman keppinaut sinn Flex Wheeler.  Ronnie Colman
|
Hefst þar með átta ára sigurganga Ronnie Árið 2003 var Ronnie 39 ára og í sýnu besta formi, næstum ómannlegur! Árið 2004 jafnaði Ronnie met Arnolds og afhenti hann því Ronnie The Sandow bikarinn.  Ronnie Coleman
|
Árið 2005 var svo 40 ára afmælisár keppninnar þar sem Ronnie náði að jafna met Haneys í 8 titla.
Árið 2005 var svo 40 ára afmælisár keppninnar þar sem Ronnie náði að jafna met Haneys í 8 titla... Jay Cutler
|
30.September 2006 verður lengi minnst sem daginn sem Jay Cutler vann Ronnie Coleman, sem hafði haldið Mr.Olympia titlinum átta ár í röð !
Jay vann allar fjórar loturnar og vann hann með 22 stigum á móti 38 ! Jay var 10-15 pundum léttari og með aðeins betri línur en Ronnie.
"This is a day no one thought they'd see. I broke the trend, you know. They said the champ can't be taken out. Well you know what? The new champ's in town. And the Sandow is staying in Las Vegas. And I get to keep my hair."
Jay Cutler eftir sigurinn Ronnie fékk heimsfræga boxarann Bruce Buffer til að kynna sig á svið, mætti svo í gervi Móses úr biblíunni með steintöflurnar hvíta skeggið og allt. Síðan heyrist:
"Thou shalt not cheat on their diet, complain about ther placings...he created his masterpiece, Ronnie Coleman." Ronnie fór síðan úr sloppnum og byrjar að pósa ! Árið 2007 sigrar Jay Cutler aftur en það ár keppti Ronnie Coleman í síðasta sinn. Árið 2008 mætir Jay Cutler helvatnaður og flatur á svið. Hann nær að miss rúmlega 5kg áður en hann stígur á svið á laugardeginum en það var ekki ekki nóg því Dexter Jackson náði að sigra hann með 7 stiga forskoti á endasprettinum. Dexter var 106,5kg á sviði eða rúmlega 13,6kg léttari en Jay Cutler. Árið 2009 endurheimtir Jay Cutler titilinn !
|