Senda í tölvupóst

Módel Fitness

Módelfitness var haldið í fyrsta skipti á Íslandi í Sjallanum, Akureyri apríl árið 2006


Módelfitness
Í megindráttum eru áherslur dómara í þessari nýju keppnisgrein þær að minni áhersla er lögð á vöðvamassa og horft er til fegurðar.

Einungis er keppt í kvennaflokki í þessari keppnisgrein, en búist er við að keppendurnir sem komi til með að sækja þessa keppnisgrein verði ekki endilega sömu keppendur og í fitness þar sem “miklir” skurðir og vöðvamassi eru ekki æskilegir. Leitað er að keppendum sem bera það með sér að vöxturinn sé tilkominn vegna íþróttaiðkunar, limaburður fallegur og sýnt er fram á hæfileika til fyrirsætustarfa. Keppendur eiga að sýna fram á fallega kvenlega líkamsbyggingu, hóflega stælta sem og fallega tónaðan og samræmdan vöxt. Húðlitur sé hóflega brúnn, ekki of dökkur.
Sigurvegarinn sem leitað er að verður væntanlega sá keppandi sem býr yfir öllum þessum kostum og ætti í kjölfarið að eiga möguleika á fyrirsætustörfum sem tengjast líkamsræktargeiranum.


Lota 1. Módellota.
Keppendur klæðast íþróttafatnaði að eigin vali. Fatnaðurinn þarf að uppfylla þau skilyrði að hylja allan líkamann og samanstanda af síðbuxum, síðerma treyjum og íþróttaskóm. Klæðast má toppi innan undir síðerma treyju og er keppanda heimilt að fara úr síðerma treyjunni þegar á sviðið er komið í fyrstu innkomu ef hann óskar þess. Fatnaðurinn má vera merktur með merki framleiðanda fatnaðarins, ekki öðrum. Yfirdómar skoðar og samþykkir fatnað við innritun og skráningu keppenda fyrir keppnina. Þessi lota er dæmd út frá framkomu og útliti með tilliti til framsetningar og hreyfingar keppandans sem fyrirsæta.

Í fyrstu innkomu eru keppendur kynntir einn í einu inn á sviðið og ganga fyrst inn að miðju, taka hægri beygju út að enda sviðs, ganga síðan þvert yfir allt sviðið að hinum endanum, aftur að miðju og þaðan út af sviðinu aftur. Þegar allir hafa verið kynntir þannig inn á sviðið koma þeir allir inn á sviðið í einu í annarri innkomu. Taka sér stöðu eftir númeraröð aftarlega á sviðinu. Keppendur ganga síðan einn í einu eftir ábendingu yfirdómara fram að miðju sviðs, snúa sér þar í einn hring, hneigja sig og taka sér aftur stöðu í röðinni. Að því loknu yfirgefa allir sviðið eftir ábendingum dómara. (Ath breytingu: Keppendum er leyfilegt að merkja íþróttagalla með merki æfingastöðvar eða framleiðanda gallans, ekki öðrum.)


Lota 2: Svart bikini.
Keppendur koma allir í einu fram á sviðið, í svörtu bikini og svörtum hælaháum skóm og eru bornir saman með fjórum snúningum.


Lota 3: Blandað bikini.
Keppendur koma allir í einu fram á sviðið, í bikini í lit að eigin vali og hælaháum skóm í lit að eigin vali. Samanburður fer fram með fjórðungssnúningum.


Lota 4: Sundbolur.
Keppendur koma allir í einu fram á sviðið, í sundbol í lit að eigin vali og hælaháum skóm í lit að eigin vali. Leyfilegt er að bera skartgripi.
 

Reglur IFBB í formfitness (bodyfitness) gilda um ofangreindar lotur með þeirri undantekningu að skartgripir eru leyfðir í fjórðu lotu. Dómarar leggja eins og áður sagði áherslu á mjög hóflegan vöðvamassa og skurði en leitað að fallegum kvenlegum línum. Fyrsta lotan er svokölluð valfrjáls (optional) lota sem dæmd er út frá ofangreindum forsendum. Að morgni keppnisdags munu allir keppendur fara í myndatöku í ljósmyndastúdíói fyrir tímarit og kynningar.


Upplýsingar fengnar af heimasíðu Fitness.is
 
 

 Sigurvegarar Módel Fitness frá upphafi

 

 

 


Guðrún Hafdís
Íslandsmót 2008

Ljósm. Fitness.is

Guðrún Hafdís
Bikarmót 2007

Ljósm. Fitness.is
Hugrún Árnadóttir
Íslandsmót 2007
Hugrún Árnadóttir
Ljósm. Sunna Hlín
vodvafikn.net
Inga Þóra Ingadóttir
Bikarmót 2006
Inga Þóra
Ljósm. Sunna Hlín
vodvafikn.net

Eva Lind Ómarsdóttir
Íslandsmót 2006
Eva Lind
Ljósm. Fitness.is