Senda í tölvupóst

Skyldustöður í Vaxtarrækt & Fitness

Ragga Nagli þýddi þetta upp úr reglum IFBB

Vaxtarrækt kvenna og karla


Fyrsta lota:
  • Keppendur framkvæma pósurútínu við tónlist að eigin vali í hámark 60 sekúndur.
Önnur lota:
  • Keppendur framkvæma sjö skyldustöður, í hóp á sama tíma til beggja hliða og í miðju sviðs.
Front double bicep

Back double bicep

Front lat spread

 Back lat spread
 
Side Tricep
Side chest
your choice of sides
 Abdominals and thigs
Front abdominal with leg
extended
forward arms over head.
 

  • Þegar þessum sjö skyldustöðum er lokið framkvæma keppendur 60 sekúndna pósurútínu við tónlist að vali skipuleggjenda.
  • Þegar dæmt er fyrir líkamsburð keppenda, er fyrst metið heildarútlit.
  • Í skyldustöðum er horft á þann vöðva sem verið sýndur er og hann síðan skoðaður í samræmi við heildarútlit, frá höfði og niður líkamann. Leitað er að vöðvamassa, samræmi milli líkamshluta og skurði með tilliti til heildarútlits.
  • Nákvæmt mat á hinum ýmsu vöðvahópum skal gert í samanburði, þar sem vöðvamassi, lögun vöðva og skurður er borinn saman með heildar útlit keppandans í huga.
  • Skyldustöður eru mikilvægar í samanburði þar sem þær hjálpa dómara að ákvarða hvaða keppandi hefur besta líkamsburð út frá vöðvamassa, samræmi og vöðvaskurði
  • Hjá konum er verið að leita eftir vöðvastæltu en jafnframt kvenlegu útliti
  • Vöðvar mega ekki verða svo ýktir að þeir fari að líkjast vöðvum karlmanna.
  • Skurði á kvenmanni má ekki rugla saman við að vera mjög grannholda vegna of mikils þyngdartaps.

Bodyfitness
(Fitness kvenna)

Tveir flokkar:
  • A-flokkur: Til og með 164 cm
  • B-flokkur: Yfir 164 cm
Keppendur koma fram þrisvar:

Lota 1: í svörtu bikini og svörtum skóm (ath það er ekki byrjað að fara eftir þessu)

Lota 2: í sundbol og skóm að eigin vali

Lota 3: í lituðu bikini og skóm að eigin vali



Keppendur taka fjóra fjórðungssnúninga í þessari röð:
  • fjórðung til hægri,
  • fjórðung bak,
  • fjórðung til hægri,
  • fjórðung fram.

Hverju er verið að leita af ?
  • Leitað er eftir vel mótuðum og vel þjálfuðum vöðvum, samræmi í líkamsvexti, húðlit og stinnri áferð húðar. Einnig er sviðsframkoma keppandans metin sem og pósur.
  • Í fitness er ekki leitað eftir of stórum vöðvum né of miklum skurði og eru keppendur dregnir niður fyrir slíkt.

Classic Bodybuilding
(talað er um fitness karla)


Það er keppt í einum flokki í fitness eins og staðan er í dag, en til þess að vera gjaldgengur í þann flokk þurfa menn að passa inn í eina af þessum formúlum sem notaðar eru sem viðmiðun.

  • 1. Upp að og með 170 sm:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +2 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 170 sm á hæð má mest vera 72 kg
  • 2. Upp að og með 175 sm:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +4 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 175 sm á hæð má mest vera 79 kg.
  • 3. Upp að og með 180 sm:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +6 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 180 sm á hæð má mest vera 86 kg.
  • 4. Yfir 180 sm:
    4.a Fyrir keppendur sem eru yfir 180 sm að og með 190 sm gildir eftirfarandi formúla:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +8 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 190 sm á hæð má mest vera 98 kg.
  • 4.b Keppendur sem eru hærri en 190 sm og að og með 198 sm gildir eftirfarandi formúla:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +9 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 191 sm má mest vera 100 kg.
  • 4.c Fyrir keppendur sem eru hærri en 198 sm gildir eftirfarandi formúla:
    Leyfileg hámarksþyngd (kg) = hæð (sm) – 100 (hámarksþyngd
    +10 kg svigrúm)
    Dæmi: Keppandi sem er 198 sm má mest vera 108 kg.

Heimildir: Fitness.is sjá hér

  • Stöður eru þær sömu og í Vaxtarræktinni
  • Karlmenn klæðast litaðri skýlu í pósum.
  • Leitað er eftir vel mótuðum og vel þjálfuðum vöðvum, samræmi í líkamsvexti, húðlit og stinnri áferð húðar. Einnig er sviðsframkoma keppandans metin sem og pósur.
  • Í fitness er ekki leitað eftir of stórum vöðvum né of miklum skurði og eru keppendur dregnir niður fyrir slíkt.