Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Hvað á að vera í töskunni á mótsdag ?



Ljósm. Terry

Haltu öllu á réttum stað

Sundbolurinn á það til að skríða upp í rassinn  fjárfestu í einhverju sem heldur buxunum föstum við rasskinnarnar og bikiníinu yfir brjóstunum. Bikini Bite og teppalím (límmband með lími báðum megin) er hægt að nota til að leysa þetta vandamál

 
 
 
 
Brúnkukrem og Olía

Komdu með nóg af olíu, Bronzer, Pro Tan eða hverju sem þú hefur ákveðið að nota. Það er líka gott að merkja brúsana sína þar sem margir keppendur eru með eins brúsa.



 

Pinnahælar.

Vertu nú búin að æfa þig að ganga í þeim ! Passa líka upp á að vera ekki í of áberandi skóm, glærir eða svartir með engu skrauti.

 


 

Handklæði og inniskór

Það verður allt flæðandi í olíu og brúnkuspreyi sem hefur farið á gólfið. Gott er að hafa handklæði til að þurrka á sér hendurnar. Ekki ganga berfætt um og það er rosa þægilegt að vera í sandölum í stað hælanna á meðan undirbúningi stendur svo það sé ekki hætta á að þú snúir þig áður en á sviðið er komið.

 


 

Bikiní og sundbolur

Gott að hafa þau í sitthvorum glærum plastpoka svo ekkert týnist. Passaðu að allir aukahlutir (Strappar, púðar og annað) séu með svo ekkert gleymist.

 


 

Hársprey/glimmerspray, hárspennur

Allt er gott í hófi ! Passaðu að vera ekki að spreyja glimmeri og hárspreyji í litlu rými þar sem allt mun fyllast af þessu, það er ógeðslegt að anda þessu að sér. Ekki er leyfilegt að setja á sig glimmer eða skartgripi fyrren eftir lotuna með svarta bikiníinu

 


 

Snyrtidót

Málingin gæti farið að renna til og gott að geta lagað

 




Skartgripir

Munið að skart og glimmerspray er ekki leyft í pósunum í svartabikiníinu. Ekki gleyma að setja það upp áður en sundbola pósurnar byrja.

 


Upphitunar græjur

Taktu með Pump up band til að hita upp. Það eru stundum lóð í boði en mundu, það eru margir keppendur og ekki gott að eyða tímanum í að bíða eftir lóðum.
 
 
 

Dýna

Ekki standa allan tíman baksviðs ! Oft hefur það eyðilagt fyrir skurðinum í fótunum að standa allan tíman baksviðs á háu hælunum.


Kolvetni og drykkur

Spurðu þann sem era ð aðstoða þig fyrir keppnina hvað þú átt að borða áður en þú ferð á svið, það er misjafnt hvað fólki finnst virka. Passaðu bara að borða ekki yfir þig. Það verður erfitt að hemja sig. Ekki þamba !!! 

 



Góða skapið

Þú ert búin að vera í margar vikur í strangri þjálfun og hörðu matarræði… vertu ánægð með að hafa náð alla leið. Að keppa á líka að vera skemmtilegt, ekki láta stressið fara með þig, vertu búin að skipuleggja framm í tímann, brostu og hafðu gaman af þessu.